Varð ekki um sel þegar hann varð var við geislann
Að sögn Vilhjálms Þórs stóð þetta í um tvær og hálfa sekúndu. Hann var sér þegar meðvitaður um að hann var í sigtinu enda aðstæður þannig, leyniskyttur á þökum gráar fyrir járnum. Viðbúnaður og öryggisgæsla vegna Pence var veruleg. Vilhjálmur segir, í samtali við Vísi, að hann hafi eiginlega verið hissa á sjálfum sér, hvernig hann tók þessu.„Ég hef lent í ýmsu en mér fannst þetta full mikið af því góða. Já, ég var bara hræddur. Ég get ekkert orðað það öðruvísi,“ segir Vilhjálmur Þór.

Íslenskur byssumaður á ferð
Málið er litið alvarlegum augum innan RÚV og þá er það til athugunar hjá Blaðamannafélagi Íslands. Heiðar Örn Sigurfinnsson varafréttastjóri hefur einkum haft með málið að gera innan RÚV.Hann segir að málið sé í skoðun og það eigi eftir að fara yfir það með skrifstofustjóra RÚV ohf.
„Það gefur augaleið að við værum ekki að skoða málið nema af því að okkur finnst þetta óþægilegt og erum ekki alveg kát með þetta,“ segir Heiðar Örn í samtali við Vísi. Hann segir að eftir því sem þau komast næst þá var um íslenskan lögreglumann að ræða en ekki bandarískan leyniþjónustumann.
Ríkisútvarpið hefur sent fyrirspurn vegna málsins til ríkilögreglustjóra og þar var fyrir svörum Jón Bjartmars. Hann vísar til reglna um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valbeitingatækja og vopna sem gilda í þessu tilfelli sem öðrum.
Jón segir þær reglur hafi verið birtar og megi nálgast á vefnum. Þá bendir hann á að vilji menn kvarta undan störfum lögreglu skuli beina slíku til sérstakrar nefndar um eftirlit með störfum lögreglu. Starfsmenn RÚV eru nú að velta því fyrir sér hvort og hvernig slíkt erindi, til þeirrar nefndar, verður útbúið.