Stofnuð hafa verið íslensk samtök gagnasérfræðinga, sem bera heitið DAMA Iceland. DAMA stendur fyrir Data Management Association og verða íslensku samtökin undir regnhlíf alþjóðasamtakanna DAMA International. Samtökin starfa í um 30 löndum og standa fyrir ráðstefnum, námskeiðum og „faglegri vottun sérfræðinga,“ eins og það er orðað í orðsendingu frá aðstandendum íslensku samtakanna.
„Gögn og hagnýting þeirra eru mikilvæg fyrir starfsemi fyrirtækja og í lífi fólks. Rétt meðhöndlun gagna getur haft úrslitaáhrif á getu fyrirtækja til að takast á við breytingar í samkeppnisumhverfinu,“ segir aukinheldur í orðsendingunni.
Íslensku samtökununum verður ætlað að halda úti starfshópum um mál sem m.a. snúa að stýringu gagna; eins og viðskiptagreind, vöruhús gagna, gagnagæði og gagnahönnun. Þá er vonast til að samtökin muni starfa náið með systurfélögum sínum erlendis, rétt eins og atvinnulífinu. „Áhersla verður lögð á að styðja félagsmenn til að verða færari í sínu fagi og breiða út þekkingu á sviðinu sem víðast,“ segir í orðsendingunni.
Samtökunum verður formlega ýtt úr vör á fimmtudag og er áhugasömum gagnasérfræðingum bent á vefsíðuna dama.is fyrir frekari upplýsingar. Formaður samtakanna er Höskuldur Hlynsson.
DAMA fyrir íslenska gagnasérfræðinga
Stefán Ó. Jónsson skrifar

Mest lesið

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu
Viðskipti innlent

Um 44 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið
Viðskipti innlent

Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag
Viðskipti innlent



Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn
Viðskipti erlent


Bjartara yfir við opnun markaða
Viðskipti erlent

Trump hótar Kínverjum 50 prósenta viðbótartolli
Viðskipti erlent