Segir flugliða neita því að fljúga með Boeing 737 Max

Þetta er haft eftir Lori Bassani, forseta þarlends stéttarfélags flugliða sem ber nafnið Association of Professional Flight Attendants.
Boeing 737 Max þoturnar hafa verið kyrrsettar um allan heim eftir tvö mannskæð flugslys í mars og október á síðasta ári. Talið er að rekja megi orsök slysanna til hugbúnaðargalla í vélunum.
„Ég get sagt þér að ég heyri í flugliðum á hverjum degi og þeir eru að sárbiðja mig um að koma í veg fyrir að þeir fari aftur um borð í þessa vél,“ sagði Bassani í samtali við bandaríska miðilinn The Dallas Morning News.
Bandarísku flugfélögin American Airlines og Southwest Airlines reikna með því að geta tekið vélarnar aftur í notkun í mars á næsta ári. Framleiðandinn Boeing segist vonast til þess 737 Max þoturnar fái aftur tilskilin leyfi í desember á þessu ári.
Ross Feinstein, talsmaður flugfélagsins American Airlines, segir að fyrirtækið viti af áhyggjum flugliða sinna en vonist til þess að þær minnki í kjölfar þjálfunar, prufuflugs vélanna og aukinnar upplýsingagjafar áður en að þoturnar taki aftur til lofts.
Tengdar fréttir

Yfirmenn flugfélaga munu fljúga með MAX-vélunum til að sannfæra almenning
Yfirmenn hjá bandarísku flugfélögunum United Airlines, American Airlines og Southwest ráðgera að fljúga sjálfir með annars farþegalausum Boeing 737 MAX vélunum eftir að flugmálayfirvöld hafa aflétt flugbanni á vélunum.

Icelandair reiknar ekki með MAX-vélum fyrr en í febrúar
Icelandair hefur uppfært flugáætlun sína í janúar og febrúar á næsta ári. Félagið gerir ekki ráð fyrir að Boeing 737 MAX flugvélar verði komnar aftur í rekstur fyrr en í lok febrúar 2020.

Yfirmanni MAX-mála hjá Boeing sparkað
Kevin McAllister, yfirmaður farþegaþotusviðs bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing, hefur verið rekinn. Brottreksturinn hefur verið tengdur við vandræði Boeing í tengslum við 737 MAX vélarnar sem eru í flugbanni um allan heim.

Samspil margra þátta leiddi til Lion Air slyssins
Rannsakendur í Indónesíu segja samspil margra þátta, eins og tæknilegra galla, mistök við viðhald og mistök flugmanna, hafa leitt til þess að Boeing 737 MAX flugvél Lion Air brotlenti skömmu eftir flugtak frá Jakarta í Indónesíu.