Foreldrafrumskógur fyrstu áranna Vigdís Ingibjörg Pálsdóttir skrifar 18. desember 2019 09:00 Það er rétt rúmlega eitt ár síðan ég varð móðir. Allar heimsins klisjur eru sannar, ég elska son minn meira en ég hélt að mögulegt væri og á sama tíma hef ég aldrei gert neitt jafn erfitt. Ég horfi á hann og mig verkjar af ást og hamingju og er löngu búin að gleyma því hvernig lífið var áður en ég fékk hann í fangið. Ég leiði þó oft hugann að því hvernig hægt væri að gera þetta tímabil þægilegra og enn ánægjulegra fyrir nýbakaða foreldra. Foreldrafrumskógurinn er nefnilega ekki alltaf vinalegur. Við njótum níu mánaða (bráðum þó tólf!) fæðingarorlofs en eftir þessa níu mánuði er okkur hent í djúpa og kalda laug. Þeir foreldrar sem ekki voru búnir að tryggja sér pláss hjá dagmömmu eða á ungbarnaleikskóla áður en getnaður átti sér stað sitja í súpunni. Það eru þrír möguleikar í stöðunni fyrir flest fólk. Einn er að sitja um dagmömmupláss í Facebook hóp og senda barnið blindandi til ókunnugrar konu hinum megin á höfuðborgarsvæðinu. Eftirlit sveitarfélaga er afar takmarkað og tilhugsunin um að treysta handahófskenndri manneskju fyrir því dýrmætasta sem foreldrarnir munu nokkurn tímann eiga er ekki auðveld. Annar möguleiki er að setja á sig Samherjahattinn og múta ungbarnaleikskólum. Foreldrarnir með stærstu ostakörfuna eða bestu sætin í Borgarleikhúsið eiga meiri möguleika en en aðrir. Hringja á vikufresti og athuga stöðuna. Vona að Nonni nágranni hafi sagt eitthvað óviðeigandi við leikskólastjórann svo barnið manns eigi meiri líkur á að komast inn en hans. Þriðji valmöguleikinn er að vera heima með barnið þangað til það kemst inn á leikskóla. Sem engin leið er að vita hvenær verður. Sum börn komast inn á leikskóla í kringum tveggja ára aldurinn sem þýðir að þá hefur annað foreldrið verið tekjulaust í þrettán mánuði. Þrettán mánuðir í samfélagi þar sem báðir foreldrar verða að vera vinnandi nema annar einstaklingurinn sé forstjóri hjá útgerðarfyrirtæki. Strákurinn minn vaknar ferskur klukkan hálf sex, sex á morgnanna. Ég er ekki jafnhress á þeim tíma dags og venjulega nær dauða en lífi af þreytu. Miðað við hans rútínu eru á þessum tímapunkti fjórir til fimm tímar þangað til hann fær sér hádegisblundinn sinn. Úti er niðamyrkur. Og það er kalt. Svo nú hefst tíminn þar sem ég elti son minn í hringinn í kringum íbúðina, loka skúffum, forða honum frá innstungum og lífshættulegu klifri og tek upp dót eftir hann. Það er nefnilega nákvæmlega ekki neitt hægt annað að gera á þessum tíma dags. Það er kolniðamyrkur, kalt og rólóferð ekkert sérstaklega girnileg. Hver einasta uppeldisstjarna á Instagram er búin að sannfæra mig um að barnaefni í sjónvarpinu muni valda athyglisbresti svo ég sleppi því. Búðir eru lokaðar og bókasöfn líka. Og morgunverðarmenning er ekki til nema í einu bakaríi á höfuðborgarsvæðinu, Bakarameistaranum í Suðurveri, þar sem ég og sonur minn erum vanalega mætt klukkan 6:30 á morgnanna að fá okkur bita með lögreglumönnunum. Ég hef eytt talsvert hærri fjárhæð í rúnstykki og ostaslaufur á síðastliðnu ári en ég er tilbúin til að viðurkenna. Ef einhver er í leit að viðskiptahugmynd þá grátbið ég þann einstakling að opna kaffihús sem opnar klukkan 6 á morgnanna, er með leikhorn fyrir börn, skiptiaðstöðu, þægileg sæti og ætilegan mat. Eða í rauninni bara eitthvað sem opnar klukkan 6 á morgnanna. Ég mæti. Með son minn. Talandi um mat. Nú reynum við foreldrarnir að borða nokkuð fjölbreytt og erum dugleg að deila því með syni okkar. Hann borðar nánast allt og borðar alltaf það sama og við foreldrarnir. En af einhverjum ástæðum þá skiptir ekki máli hvaða veitingastað ég fer á, barnamatseðillinn er alltaf eins. Hvort sem það er rándýrt og forframað kaffihús á Kjarvalsstöðum eða veitingastaður í Hörpunni sem gerir út á fjölbreytta fæðu, þá eru alltaf kjúklinganaggar og franskar eða hvítt brauð með skinku og osti í boði fyrir börnin. Án þess að vera ólífuolíueinræðisherra sem ofnbakar grænmeti öll kvöld þá af hverju í veröldinni ætti ég að panta eitthvað fyrir barnið mitt sem ég myndi ekki vilja fá mér sjálf? Þurfa börn ekki sömu vítamín og næringarefni og fullorðið fólk? Getum við verið aðeins meira eins og Evrópa og aðeins minna eins og Bandaríkin hvað þetta varðar? Það má ekki gleyma klæðunum og samfélagslegri pressu á Instagramhæfan barnafatnað. Foreldrar með útrunnið fæðingarorlof flykkjast í Ármúlann sem er orðið einhvers konar Mekka tískumæðra. Þar fást samfellur á sjöþúsund krónur sem barnið vex úr á mánuði eða útatar í banana við fyrstu notkun. Varasjóðurinn þynnist en fataskápurinn stækkar og hver einustu Konges sløjd kaup réttlætir Molo-móðirin með því að hún er búin að bóka bás í Barnaloppunni eftir tvo mánuði þar sem hún mun fá eitthvað af þessum peningum til baka. ,,Hvaða ungbarnamamma vill ekki fá notaðan Jamie Kay nærbol á bumbugullið sitt?” hugsar móðirin og keyrir áfram tvö hundruð þúsund króna Bugaboo vagninn sinn. En það má ekki gleyma góðu hlutunum, sama hversu litlir eða stórir þeir eru. Ísland er eitt öruggasta land í heimi og ég get róleg leyft barninu mínu að sofa í vagninum fyrir utan næsta kaffihús. Heilbrigðisþjónusta er ókeypis fyrir börn undir tveggja ára og ég fæ strax aðgang að frábærum lækni með litlum sem engum fyrirvara ef eitthvað bjátar á. Matvöruverslanir bjóða upp á banana fyrir litla munna á meðan innkaupaferð stendur og þar sem borgin er hæfilega stór er aldrei langt að fara til ömmu og afa, frænku og frænda. Ef fæðingarorlofið verður framlengt og sveitarfélög girða sig í brók og koma börnum í almennilega daggæslu á góðum tíma þá er stórt vandamál leyst. Ég legg líka til fríar strætóferðir fyrir foreldra með vagna og kerrur sem rúnta um höfuðborgarsvæðið í leit að einhverju að gera. Ef við sjáum svo sjálf um að hvetja kaffihús til að opna fyrr eða fáum frumkvöðul til að hrinda í framkvæmd ungbarnavænum morgunverðarstað, hækkum í umræðunni um fjölbreytta fæðu til barna og setjum líka ,,like” á Barnaloppubörn og krútt klædd í Lindex fatnaði þá erum við á grænni grein. Þá eignast ég eflaust sjö börn því það er engin sæla eins stórkostleg og sú sem fylgir því að verða foreldri. Höfundur er viðskiptafræðingur. Þessi grein er birt í samstarfi við Róm. Rómur er vettvangur fyrir ungt frjálslynt fólk til þess að láta að sér kveða í samfélagsumræðunni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Börn og uppeldi Fæðingarorlof Rómur Mest lesið Virðisaukaskattur í ferðaþjónustu: Skattfríðindi eða röng túlkun? Eðli virðisaukaskatts, alþjóðlegt samhengi og hlutverk ferðaþjónustunnar sem gjaldeyrisskapandi útflutningsgreinar Þórir Garðarsson Skoðun Þétting í þágu hverra? Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson Skoðun Úlfar sem forðast sól! Jóna Guðbjörg Árnadóttir Skoðun Hann valdi sér nafnið Leó Bjarni Karlsson Skoðun Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf Einar G. Harðarson Skoðun Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza Birgir Finnsson Skoðun Misskilin sjálfsmynd Finnur Thorlacius Eiríksson Skoðun Halldór 10.05.2025 Halldór Byggðalína eða Borgarlína Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Skoðun Skoðun Rjúfum þögnina og tölum um dauðann Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Virðisaukaskattur í ferðaþjónustu: Skattfríðindi eða röng túlkun? Eðli virðisaukaskatts, alþjóðlegt samhengi og hlutverk ferðaþjónustunnar sem gjaldeyrisskapandi útflutningsgreinar Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fátækt á Íslandi: Áskoranir, viðkvæmir hópar og leiðir til úrbóta Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Verndum vörumerki í tónlist Eiríkur Sigurðsson skrifar Skoðun Hann valdi sér nafnið Leó Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Misskilin sjálfsmynd Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar Skoðun Hvenær er nóg nóg? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Byggðalína eða Borgarlína Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Úlfar sem forðast sól! Jóna Guðbjörg Árnadóttir skrifar Skoðun Aldrei aftur Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tala ekki um lokamarkmiðið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Þétting í þágu hverra? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason skrifar Skoðun POTS er ekki tískubylgja Hanna Birna Valdimarsdóttir,Hugrún Vignisdóttir skrifar Skoðun Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024 Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Ægir Örn Arnarson skrifar Skoðun Loftslagsaðgerðir eru forsenda velsældar til framtíðar – ekki valkostur: Svargrein við niðurstöðum rannsóknar sem kynnt var á Velsældarþingi í gær Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun 75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig! Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Vetrarvirkjanir Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Yfirgnæfandi meirihluti vill þjóðaratkvæði Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Smábátar eru framtíðin, segir David Attenborough Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Leiðrétting veiðigjalda mun skila sér í bættum innviðum Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Efnahagslegur hagvöxtur þýðir ekki endilega samfélagslegur hagvöxtur Davíð Routley skrifar Skoðun Börn innan seilingar Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Sjá meira
Virðisaukaskattur í ferðaþjónustu: Skattfríðindi eða röng túlkun? Eðli virðisaukaskatts, alþjóðlegt samhengi og hlutverk ferðaþjónustunnar sem gjaldeyrisskapandi útflutningsgreinar Þórir Garðarsson Skoðun
Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Skoðun Virðisaukaskattur í ferðaþjónustu: Skattfríðindi eða röng túlkun? Eðli virðisaukaskatts, alþjóðlegt samhengi og hlutverk ferðaþjónustunnar sem gjaldeyrisskapandi útflutningsgreinar Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Fátækt á Íslandi: Áskoranir, viðkvæmir hópar og leiðir til úrbóta Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar
Skoðun Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason skrifar
Skoðun Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024 Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar
Skoðun Loftslagsaðgerðir eru forsenda velsældar til framtíðar – ekki valkostur: Svargrein við niðurstöðum rannsóknar sem kynnt var á Velsældarþingi í gær Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið Arnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Efnahagslegur hagvöxtur þýðir ekki endilega samfélagslegur hagvöxtur Davíð Routley skrifar
Virðisaukaskattur í ferðaþjónustu: Skattfríðindi eða röng túlkun? Eðli virðisaukaskatts, alþjóðlegt samhengi og hlutverk ferðaþjónustunnar sem gjaldeyrisskapandi útflutningsgreinar Þórir Garðarsson Skoðun
Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson Skoðun