„Ábyrgðin alfarið Bandaríkjamanna“ Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 27. júlí 2020 19:00
Bandaríkjamenn yfirgáfu í morgun ræðisskrifstofu sína í kínversku borginni Chengdu. Kínversk stjórnvöld skipuðu Bandaríkjunum að loka skrifstofunni eftir að Bandaríkjamenn létu loka ræðisskrifstofu Kínverja í Houston. Fáni Bandaríkjanna var tekinn niður, skilti voru fjarlægð og starfsmenn gengu út eftir að þriggja sólarhringa fresturinn sem Kínverjar gáfu Bandaríkjamönnum til að loka skrifstofunni rann út í morgun. Nokkur hópur Kínverja safnaðist saman fyrir utan ræðisskrifstofunna og mótmælti Bandaríkjamönnunum. Lengi lifi Kommúnistaflokkur Kína, heyrðist hrópað. Lokun skrifstofunnar í Chengdu kemur ekki á óvart og segja kínversk stjórnvöld þetta vera bæði réttlátt og nauðsynlegt svar við lokun kínversku ræðisskrifstofunnar í Houston. „Við viljum ekki hafa samband Kína og Bandaríkjanna eins og það er nú. Ábyrgðin á því er alfarið Bandaríkjamanna. Við hvetjum Bandaríkin enn á ný til þess að leiðrétta mistök sín og skapa þær aðstæður sem þarf til að samband ríkjanna blómstri,“ sagði Wang Wenbin, upplýsingafulltrúi kínverska utanríkisráðuneytisins, á blaðamannafundi í dag. Bandaríkjamenn létu loka skrifstofunni í Houston í síðustu viku í því skyni að fyrirbyggja hugverkastuld og njósnir. Bandaríski utanríkisráðherrann sagði fyrir helgi að Kínverjar hefðu kostað milljónir Bandaríkjamanna störf sín.
Bandaríkin Kína Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Innlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Fleiri fréttir Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Sjá meira