Gamlar heyrúllur nýtast nú við uppgræðslu lands í Þingeyjarsýslu í samstarfsverkefni Bárðdælinga og Mývetninga. Ungmenni sem urðu af sumarstarfi vegna kórónufaraldursins fengu verkefni um leið og bændur losnuðu við ónýtt hey. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.
Við fundum þau í Bárðardal á lítt grónum melum. Bændurnir á Halldórsstöðum voru að koma heyrúllum fyrir á hentugum stað efst í brekku, þar tóku ungmenni við þeim og ristu utan af þeim plastið. Okkur var sagt að sumar rúllurnar væru 20-30 ára gamlar.
„Þetta er uppgræðsluverkefni þar sem verið að dreifa gömlum heyrúllum, sem eru ónýtar. Þannig að það er ekki verið að gefa þær og þær verða notaðar við uppræðslu,“ sagði verkefnisstjórinn Sigurlína Tryggvadóttir, landfræðingur og bóndi í Svartárkoti.

Við sáum hvernig hópurinn nýtti sér þyngdaraflið til að rúlla heyrúllunum undan brekku og dreifa heyinu þannig um svæðið.
„Þetta er tvíþætt. Þú losnar svona við þessa afganga og getur gengið frá þessu plasti. Síðan notar þú heyið við uppgræðslu, sem annars væri ónýtt. Það er ekkert hægt að nýta það á annan hátt.“
Þetta er samstarfsverkefni Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps með stuðningi Landgræðslunnar. Sigurlína segir það hafa sprottið upp af grasrótarstarfi í Bárðardal.
„Þar sem tveir bændur fengu þessa hugmynd að telja gamlar heyfyrningar, rúllur, og komust að því að þetta væru um það bil 900 rúllur.“
En hugmyndin var líka sú að skapa atvinnu fyrir ungmenni í sveitinni eftir að störfum sem þau annars hefðu sinnt í ferðaþjónustu fækkaði vegna covid.
„Það eru nokkrir krakkar, eða fjórir krakkar, að vinna við þetta,“ segir Sigurlína.

Bændur koma einnig að þessu með því að leggja til heyrúllur og dráttarvélar og hjálpa til við að flytja rúllurnar.
„Þannig að þetta er stórt samvinnuverkefni.“
Gamla heyið er auðvitað ekkert annað en lífrænn áburður og kjörið landgræðsluefni, að mati Bárðdælinga.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: