Í dag verður dregið í riðla í Þjóðadeildinni þar sem íslenska karlalandsliðið er áfram í hópi A-þjóða eftir að fjölgað var í A-deildinni.
Íslensku landsliðsmennirnir eru auðvitað með hugan við umspilið um laust sæti á EM og fram undan er gríðarlega mikilvægur leikur á móti Rúmeníu á Laugardalsvelli 26. mars næstkomandi sem við hjá Vísi erum að telja niður í. Íslensku strákarnir ná vonandi að tryggja sig inn á EM í sumar en í haust tekur síðan við Þjóðadeildin.
Öll riðlakeppni Þjóðadeildarinnar 2020-21 fer fram frá september til nóvember 2020. Lokaúrslitin fara síðan fram í júní 2021. Þjóðunum í A-deildinni er skipt niður í fjóra styrkleikaflokka og fer eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki í hvern riðil.
Vísir mun fylgjast vel með drættinum í dag og sýna beint frá honum. Ríkharð Guðnason mun hita upp fyrir dráttinn á Stöð 2 Sport og Vísi og fara líka yfir niðurstöðurnar eftir hann þar sem hann mun kalla eftir viðbrögðum frá íslenskum landsliðsmanni.
Ísland er í fjórða og síðasta styrkleikaflokknum með hinum þjóðunum sem áttu líka að falla áður en var fjölgað úr tólf liðum í sextán lið. Hinar þjóðirnar í fjórða styrkleikaflokki eru Þýskaland, Króatía og Pólland. Það er því öruggt að Ísland lendir ekki í riðli með þessum þremur þjóðum.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig drátturinn fer fram í dag.
Það er líka ljóst að riðill íslenska liðsins getur orðið mjög krefjandi. England og Ítalía eða Holland og Spánn. Liðin sem koma í íslenska riðilinn úr efstu tveimur styrkleikaflokknum geta bæði komið úr hópi bestu liða heims en við gætum líka lent í riðli með góðkunningjum okkar eins og Portúgal og Belgíu eða Sviss og Frakklandi.
Hér fyrir neðan má sjá nokkra möguleika á draumariðli, martraðarriðli og mögulega léttasta riðlinum í boði.
Draumariðill
England
Ítalía
Danmörk
Ísland
Erfiðasti riðillinn
Holland
Frakkland
Úkraína
Ísland
Léttasti riðillinn
Sviss
Ítalía
Bosnía
Ísland
Styrkleikaflokkarnir í A-deild:
Fyrsti: Portúgal, Holland, England, Sviss
Annar: Belgía, Frakkland Spánn, Ítalía
Þriðji: Bosnía, Úkraína Danmörk, Svíþjóð
Fjórði: Króatía, Pólland, Þýskaland, Ísland
- Efsta riðil í hverjum riðli kemst í úrslitin en neðsta liðið fellur í B-deild.
Leikdagar í Þjóðadeildinni 2020-21:
1. umferð: 3.–5. september 2020
2. umferð: 6.–8. september 2020
3. umferð: 8.–10. október 2020
4. umferð: 11.–13. október 2020
5. umferð: 12.–14. nóvember 2020
6. umferð: 15.–17. nóvember 2020
Úrslitin: 2., 3. og 6. júní 2021
Ísland og Rúmenía mætast í umspili um laust sæti á EM 2020 á Laugardalsvelli 26. mars. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en sérstakur upphitunarþáttur fyrir leikinn verður á dagskrá 16. mars á Stöð 2 Sport.