Körfubolti

Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“

Aron Guðmundsson skrifar
Pétur Rúnar Birgisson, fyrirliði Tindastóls í síðasta leik gegn Stjörnunni í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta.
Pétur Rúnar Birgisson, fyrirliði Tindastóls í síðasta leik gegn Stjörnunni í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta. Vísir/Hulda Margrét

Pétur Rúnar Birgis­son, fyrir­liði Tindastóls, segir mikilvægt fyrir sig og sína liðs­félaga að dvelja ekki við frammistöðuna í síðasta leik gegn Stjörnunni í úr­slita­ein­vígi Bónus-deildar karla þar sem að pirringur út í dómara leiksins hafði aðeins of mikil áhrif. Það hafi verið leiðin­legt hvernig leikurinn tapaðist, nú þurfi að svara fyrir það.

Leik­menn Tindastóls létu skapið hlaupa með sig í gönur í síðasta leik liðanna í Garða­bæ sem lauk með 29 stiga sigri Stjörnunnar sem jöfnuðu þar með ein­vígið í stöðuna 1-1. Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér Ís­lands­meistara­titilinn og nú í kvöld heldur ein­vígið aftur í Síkið á Sauðárkróki þar sem að Stólarnir vilja án efa koma með ákveðið svar.

Hafandi horft á tap­leikinn aftur milli leikja segir Pétur að margt gott hafi verið að finna í leik Tindastóls framan af. Þegar komið var fram í fjórða leik­hluta virtist hins vegar allt leik­plan fjúka út um gluggann.

„Við erum undir ein­hverjum ellefu til þrettán stigum fyrir fjórða leik­hlutann en svo missum við bara hausinn. Leyfum þeim að skjóta mikið af vítum, það er bara eitt­hvað sem við verðum að passa okkur á. Við megum ekki gjör­sam­lega missa hausinn og láta dómarana fara svona mikið í taugarnar á okkur. Það var bara svolítið það sem gerðist. Stjarnan fékk þarna níu stiga sókn í byrjun fjórða leik­hluta sem fór svolítið með leikinn fyrir okkur, við áttum erfitt með að koma til baka eftir það.“

Er eitt­hvað sem skýrir það hvers vegna þið missið hausinn svona?

„Maður er búinn að vera lengi í íþróttum og þetta er ein­hver rétt­lætis­hyggja sem spilar þarna inn í. Þér finnst á þér brotið og svo er dæmt hinu megin og þú ræður ekki við til­finningarnar. Giannis Agravanis fær tækni­villu fyrir svo ekkert miklar sakir og mér finnst dómararnir hafa getað sleppt henni en þeir dæma hana og þá missir eldri bróðir hans hausinn. Það þurfti ekki meira til þarna. Hann missir hausinn, fær tækni­villu og er hent beint út, í þokka­bót er svo brotið á Ægi Þór í skoti. Þeir fengu sex víti, boltann og það var bara full­mikið á þessum tíma­punkti og erfitt að koma til baka. Ég held að menn séu búnir að grafa þetta og séu klárir í leikinn í kvöld.“

Til­finningin væntan­lega verið beisk eftir þennan leik. Hvernig hafið þið unnið úr þessu á þessum stutta tíma milli leikja?

„Til­finningin var ekki góð, mér fannst leiðin­legt hvernig við töpuðum þessu en svo horfir maður bara á þetta aftur og þetta var ekkert ömur­legt. Við áttum gott spjall. Það eru mest þrír leikir eftir, minnst tveir og það er voða skrítið ef við ætlum að láta þetta hafa áhrif á okkur til langs tíma. Menn eru bara klárir á því að skilja þetta eftir í fortíðinni og mæta klárir til leiks í kvöld.“

Menn vilja koma með ákveðið svar?

„Já klár­lega. Það er ekkert gaman að tapa með þrjátíu stigum. Við vinnum fyrsta leikinn með þremur stigum og staðan í ein­víginu verður 1-0. Þeir vinna okkur svo með þrjátíu stigum og staðan í ein­víginu er orðin 1-1. Það er ekki eins og það hafi eitt­hvað verra en það gerst, við verðum bara að halda áfram að verja okkar heima­völl, gera það í kvöld. Við mætum klárir með okkar stuðnings­mönnum og reynum að gera eitt­hvað sér­stakt.

Þriðji leikur Tindastóls og Stjörnunnar í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leik hefst klukkan hálf sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×