Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur biðlað til nýs forsætisráðherra Líbanon að mynda nýja ríkisstjórn í flýti. Mustapha Adib var í dag tilnefndur til embættis forsætisráðherra en hann hefur verið sendiherra landsins í Þýskalandi undanfarin misseri.
Adib hefur hlotið stuðning flestra þingmanna líbanska þingsins auk fjögurra fyrrverandi forsætisráðherra Líbanon. Allir helstu stjórnspekingar Líbanon segja afskipti Macron hafa leikið lykilhlutverk í því að einhugur næðist hvað varðar tilnefningu Adib.
Ríkisstjórn landsins sagði af sér í kjölfar mannskæðrar sprengingar sem varð í Beirút, höfuðborg landsins, þann 4. ágúst síðastliðinn. Minnst tvö hundruð létust í sprengingunni og allt að þrjú hundruð þúsund misstu heimili sín.
Macron kom til Beirút í dag, mánudag, í annað sinn eftir sprenginguna mannskæðu. Á meðan á heimsókn hans stendur er talið að hann muni þrýsta á líbanska stjórnmálamenn til þess að þeir beiti sér gegn spillingu og sólundun fjármuna.
Þá sagði hann í samtali við fréttamenn að nýja ríkisstjórn þyrfti að mynda í snarhasti, sem Adib hefur þegar lofað. Hann hefur þó ekki mætt algerum einhug í ferð sinni en í Beirút mættu honum mótmælendur, sem kyrjuðu „enginn Adib,“ sem margir telja merki þess að almenningur landsins sjái tilnefningu Adib sem tilraun til að halda áfram í rótgrónar stjórnmálahefðir landsins.
Frá því í október 2019 hafa mótmæli staðið yfir í landinu og hafa mótmælendur kallað eftir því að stjórnkerfi landsins verði endurskipulagt. Mótmælin hafa aðeins færst í aukana frá því sprengingin varð í ágúst sem er sögð vera til marks um opinbera vanrækslu og sinnuleysi yfirvalda.
Hassan Diab, fyrrverandi forsætisráðherra landsins sem sagði af sér í kjölfar sprengingarinnar, tók við embættinu af Saad Hariri í desember á síðasta ári en Hariri sagði af sér vegna fyrrnefndra mótmæla. Ráðandi fylkingar í Líbanon deildu um margra mánaða skeið áður en Diab var skipaður í embætti en ríkisstjórn hans hlaut stuðning Hezbollah samtakanna, sem samanstanda af stjórnmálaflokki og vopnuðum sveitum shía-múslima.
Skipting stjórnkerfisins í Líbanon, sem mótmælendur eru svo mótfallnir, gerir ráð fyrir því að forsætisráðherrann sé alltaf súnní-múslimi, forsetinn sé alltaf kristinnar trúar og forseti þingsins shía-múslimi. Þá eru mörg störf í landinu einnig skipuð samkvæmt þessari trúarskiptu hefð. Mótmælendur hafa sakað stjórnmálafólk landsins um frændhygli, pólitískt veitingarvald og landlæga spillingu.