Hvorki mökum né aðstandendum verður heimilt að fylgja konum í ómskoðun á fósturgreiningu 21B á Landspítalanum frá morgundeginum.
Þetta kemur fram á vef Landspítalans en ákvörðunin er tekin vegna hertra reglna í samfélaginu í tengslum við Covid-19 og þeirri staðreynd að Landspítali er á neyðarstigi.
„Makar/aðstandendur eru beðnir um að bíða úti í bíl en ekki á biðstofum.
Óskað er eftir því að fólk sýni starfsfólki deildarinnar skilning vegna þessarar ákvörðunar,“ segir í tilkynningunni.