Ekkert verður að leik Baltimore Ravens og Pittsburgh Steelers sem átti að vera spilaður Í NFL-deildinni í dag og var kvöldleikurinn á Þakkargjörðardaginn.
Það þarf kannski ekki að koma mikið á óvart að kórónuveiran hafi náð að skapa usla í NFL-deildinni á sjálfan Þakkargjörðardaginn.
Það verða því bara tveir leikir í beinni á Stöð 2 Sport í dag en ekki þrír. Þetta er í fyrsta sinn sem Þakkargjörðardagsleikirnir eru sýndir beint í íslensku sjónvarpi.
Breaking: The Ravens-Steelers Thanksgiving game has been postponed until Sunday afternoon, the NFL announced. pic.twitter.com/25eE7bXCL8
— SportsCenter (@SportsCenter) November 25, 2020
Lokaleikur kvöldsins átti að vera stórleikur Baltimore Ravens og Pittsburgh Steelers sem er innbyrðis leikur tveggja öflugra liða í AFC Norður. Pittsburgh Steelers hefur unnið fyrstu tíu leiki sína en Baltimore Ravens er með sex sigra í tíu leikjum.
Kórónuveiran hefur hreiðrað um sig hjá Hröfnunum og hefur nokkrir leikmenn liðsins þurft að fara í einangrun vegna smita og aðrir hafa síðan þurft að fara í sóttkví vegna návígis við hina.
Alls hafa alla vega sjö leikmenn Baltimore Ravens smitast af kórónuveirunni og þeir munu örugglega missa af leiknum þegar hann fer fram á sunnudaginn. Það er aftur á móti meiri líkur á því að leikmenn losni út sóttkví fyrir leikinn komi þeir neikvæðir út úr smitprófum.
Leikur Baltimore Ravens og Pittsburgh Steelers hefur nú verið settur á um miðjan dag á sunnudaginn að íslenskum tíma.
Þetta er í annað skiptið sem NFL-deildin hefur þurft að færa til leik Pittsburgh Steelers vegna smita hjá mótherjunum og stjörnuútherjinn og samfélagsstjarnan JuJu Smith-Schuster var ekki alltof sáttur við það að missa af því að spila kvöldleik á Þakkargjörðardeginum.
First the NFL takes away our bye week because another team can t get their Covid situation together, now they take away our Thanksgiving primetime game for the same reason. Smh.
— JuJu Smith-Schuster (@TeamJuJu) November 25, 2020
Leikirnir sem verða sýndir á Stöð 2 Sport í dag eru annars vegar leikur Detroit Lions og Houston Texans en útsendingin frá honum hefst klukkan 17.25 á Stöð 2 Sport 4 og svo hins vegar leikur Dallas Cowboys og Washington Football Team en útsendingin frá honum hefst klukkan 21.25 á Stöð 2 Sport 4.