Hver er Iðnaðarmaður Íslands 2020? Tinni Sveinsson skrifar 2. desember 2020 08:01 Dómnefnd hefur valið tíu sem keppa um eftirsótta titilinn Iðnaðarmaður ársins 2020. Árleg leit útvarpsstöðvarinnar X977 að Iðnaðarmanni Íslands 2020 er í fullum gangi. Undanfarnar vikur hefur hlustendum boðist að koma með tilnefningar og bárust yfir hundrað ábendingar um iðnaðarmenn sem eiga titilinn skilið.
Sérstök dómnefnd fór svo yfir allar tilnefningar. Hún hefur valið tíu einstaklinga sem þóttu skara framúr og hefst nú kosning á Iðnaðarmanni Íslands 2020. Þetta er í sjötta skiptið sem Iðnaðarmaðurinn er valinn hér á Vísi. Árið 2015 var Arnór Davíð Pétursson pípari valinn, 2016 var það Halldóra Þorvarðardóttir blikksmiður, 2017 Auður Linda Sonjudóttir, 2018 Kristín Snorradóttir skrúðgarðyrkjufræðingur og 2019 Malín Frid loftlínurafvirki. Kosningin stendur yfir til hádegis mánudaginn 14. desember. Í kjölfarið verður sigurvegarinn kynntur. Hér fyrir neðan má sjá keppendur og lesa meðmælabréfin sem fylgdu tilnefningum þeirra. Þar fyrir neðan er síðan kosningin sjálf og hvetjum við alla til að taka þátt. Anton, Guðrún, Linda og Halldór eru tilnefnd sem Iðnaðarmaður ársins 2020. Anton Kári Halldórsson Meðmælabréf: Anton Kári Halldórsson stóð upp frá skrifstofustólnum (sveitastjórastólnum), dustaði rykið af hamrinum og fór í byggingavinnu. Guðrún Svava Gómez bifvélavirki Meðmælabréf: Guðrún Svava er frábær bifvélavirki, vandvirk og kann vel til verka. Hún tók meðal annars þátt í herferðinni #kvennastarf. Linda Þorvaldsdóttir málari Meðmælabréf: Linda, aka Mæja Málari, er hörkuduglegur málari hjá Landspítalanum. Hún hefur verið einn af framlínu iðnaðarmönnum þjóðfélagsins á síðustu og verstu. Er einnig þekkt sem Mæja Málari í auglýsingu Fortis. Halldór Viðar Jakobsson prentari Meðmælabréf: Halldór Viðar er yfirprentari hjá Ísafoldarprentsmiðju. Þessi 47 ára drengur hefur prentað blöð og bækur í nærri 30 ár. Fyrir viku síðan bjargaði hann lífi manns sem hann hafði kynnst fimm mínútum áður með því að hnoða og blása í hann lífi þar til að sjúkrabíllinn kom. Hann er ávallt til staðar fyrir aðra. Betri vin er ekki hægt að hugsa sér. Halldór hjólar í hvaða veðri sem er til vinnu og er gítarleikari rokkbandssins Sjúðann. Helgi Ólafsson, Margrét og Helgi Sveinbjörnsson eru tilnefnd sem Iðnaðarmaður ársins 2020. Helgi Ólafsson rafvirki Meðmælabréf: Helgi rafvirki er 92 ára og hvergi hættur. Býðst til þess að borga fyrir að fá að vinna. Margrét Pétursdóttir hársnyrtimeistari Meðmælabréf: Margrét er hárgreiðslumeistari á Sauðárkróki. Hún hefur staðið vaktina í rúm fjörutíu ár eða síðan 1979. Margrét gerir alla glæsilega, bæði lifandi og liðna. Eins hefur hún ekki sett það fyrir sig að vinna á aðfangadag og gamlársdag svo að allir sem vilja komist vel til fara í sínar veislur. Með þessu öllu saman hefur hún haldið heimili og alið upp fjögur fyrirmyndarbörn. Helgi Sveinbjörnsson Slakkakóngur Meðmælabréf: Helgi er einn mesti naglinn, aðal spaðinn. Hann er á hinum herrans aldri 71 árs og vinnur í dýragarðinum Slakka allt árið. Auk þess er hann stanslaust smíðandi, hvort sem það eru bústaðir, dýrahús, girðingar eða annað. Hann getur reddað öllu, hvort sem það er suða eða að setja upp ljós eða rafmagn, kallinn reddar því. Glódís Tara, Lena og Victor eru tilnefnd sem Iðnaðarmaður ársins 2020. Glódís Tara hársnyrtir Meðmælabréf: Glódís Tara er hársnyrtir á Modus og gatari á Bleksmiðjunni. Hún er eðaltöffari en jafnframt gull af manneskju sem dæmir engan. Glódís Tara klippir og snyrtir heimilislausa karlmenn frítt og talar ekkert um það. Lena Magnúsdóttir hársnyrtimeistari Meðmælabréf: Lena er algjör snillingur með skærin fyrir hvaða aldur sem er. Hvort sem þú ert krabbameinssjúklingur eða þriggja ára strumpur. Hjá henni eru metnaður og fagmennska í fyrirrúmi. Victor Hjörvarsson bifvélavirki Meðmælabréf: Victor er ungur strákur sem opnaði sitt eigið verkstæði á þessu ári og er því framúrskarandi bifvélavirki. Jæja, þá er komið að því. Hver er iðnaðarmaður Íslands 2020? Taktu þátt í kosningunni hér fyrir neðan.
Iðnaðarmaður ársins Mest lesið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak Menning „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Bíó og sjónvarp Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Bara alvöru áhrifavaldar í afmælispartýi Polynorth Lífið samstarf Fleiri fréttir „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta „Ég held ég sé með niðurgang“ Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Steldu stílnum af heimili Svönu Lovísu Hollt veisluhlaðborð sem er lygilega bragðgott og girnilegt Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París VÆB-bræður fyrstir á svið í Eurovision Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Stefán Einar og Sara Lind selja parhúsið Richard Chamberlain er látinn Úr svefnherbergispoppi í drum-n-bass: „Fólkið var ógeðslega mikið að fíla þetta“ „Þarna brotnaði ég bara niður og grét og grét“ Krakkatían: Andrés Önd, Bubbi Morthens og ballett Adolescence: Börn ekki lengur örugg ein inni í herbergi Halda tíu tíma maraþontónleika Löng fangelsisvist blasir við popparanum Áhrifavaldar og þingmenn ræddu kærleikann „Þetta má ekki vera feimnismál“ „Ástarsorg er best í heimi“ Fréttatía vikunnar: Eddan, rektorskjör og mannanafnanefnd Fólk spyrji um veganisma af forvitni frekar en til að vera með leiðindi Fimm tíma morgunrútínan sem allir eru að tala um Eiginkona rafrettukóngs keypti eitt dýrasta einbýlishús Garðabæjar Dóttir Fox og Kelly komin í heiminn „Þetta var ekki alið upp í mér“ Hefur miklar áhyggjur af auknum vopnaburði barna Bitin Bachelor stjarna Svara auknum fordómum og fáfræði með jákvæðni og list Sjá meira