Glímum enn við leifarnar af norðanstormi gærdagsins Atli Ísleifsson skrifar 28. desember 2020 06:56 Í kvöld lægir svo um munar vestantil á landinu. Vísir/Vilhelm Landsmenn munu í dag glíma við leifarnar af þeim norðanstormi sem var á landinu í gær. Útlit er fyrir norðan strekking eða allhvassan vind, en suðaustan- og austanlands eru vindstrengir sem væntanlega ná styrk hvassviðris eða jafnvel storms.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Búast megi við éljum á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri um landið sunnan- og vestanvert. „Það er að kólna hjá okkur og síðdegis má búast við frosti á bilinu 2 til 7 stig. Í kvöld lægir síðan svo um munar vestantil á landinu. Á morgun er útlit fyrir hæga breytilega átt víðast hvar, en norðan strekkingur austast á landinu. Víða þurrt og bjart veður, en líkur eru á dálítilli snjókomu norðvestantil og lítilsháttar él með norðausturströndinni. Frost á morgun á bilinu 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Næstu daga þar á eftir gera spár síðan ráð fyrir tiltölulega rólegu veðri.“ Spákortið fyrir hádegið.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Breytileg átt 3-8 m/s, en norðan 8-13 austast á landinu. Dálítil snjókoma norðvestantil, en þurrt í öðrum landshlutum. Frost 2 til 12 stig, kaldast í innsveitum. Á miðvikudag: Breytileg átt 3-10. Víða bjart veður, en lítilsháttar él við vestur- og norðausturströndina. Áfram kalt í veðri. Á fimmtudag (gamlársdagur): Vestlæg eða breytileg átt 3-8. Skýjað að mestu og dálítil él á víð og dreif, en þurrt austanlands. Hiti frá frostmarki við vesturströndina, niður í 10 stiga frost á Austurlandi. Á föstudag (nýársdagur): Hæg breytileg átt, bjartvirði og frost 3 til 12 stig. Sunnan 5-10 á vestanverðu landinu með skýjuðu veðri og hita rétt yfir frostmarki. Á laugardag og sunnudag: Suðlæg átt og lítlisháttar væta, hiti 2 til 6 stig. Þurrt og bjart norðaustan- og austanlands og hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Slydda og snjókoma víða um land Appelsínugular viðvaranir í kortunum Sjá meira