Vinna NGS á að hefjast strax og standa yfir í minnst fjórtán mánuði.
Vélmennið Perseverance verður notað til að taka sýnin og rannsaka þau og kanna hvort þar megi finna ummerki örvera en með samvinnu NASA og Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) verða þau flutt aftur til jarðar svo hægt verði að rannsaka þau nánar.
Ferlið virkar á þá leið að Perseverance sem lenti nýverið á Mars, verður notað til að safna sýnum og koma þeim fyrir í sérstökum ílátum. NASA og ESA munu senda far til Mars sem mun lenda og safna sýnunum saman.
Nothrop Gumman Systems á að þróa búnað til að koma sýnunum frá yfirborði Mars til geimfars ESA, sem mun þá vera á braut um Mars og á að flytja sýnin aftur til jarðarinnar.
Það mun gera vísindamönnum jarðarinn kleift að rannsaka jarðvegssýnin á mun nákvæmari máta hægt er að gera með þeim vélmennum sem send hafa verið til Mars. Sömuleiðis verður hægt að rannsaka þau seinna meir með tækni sem er ekki til staðar í dag, eins og gert hefur verið við jarðvegssýnin sem flutt voru frá tunglinu árum áður.
Markmiðið er auðvitað að finna hvort sýnin innihaldi ummerki örvera sem talið er að gætu hafa lifað á Mars þegar vatn flæddi um yfirborð plánetunnar, fyrir um 3,5 milljörðum ára.
Vonast var til þess að hægt yrði að skjóta farinu á loft árið 2026, lenda því á Mars árið 2028 og koma sýnunum til jarðarinnar fyrir árið 2031. Sú áætlun er þó í lausu lofti, ef svo má að orði komast, eftir að nefnd lagði til að henni yrði seinkað.
Frekari og ítarlegri upplýsingar um verkefni Perseverance má finna í fréttinni hér að neðan.