Skoðun

Hvernig bætum við þjónustu við eldra fólk?

Ólafur Þór Gunnarsson skrifar

Nú ætla ég að svara eins og stjórnmálamenn gera yfirleitt ekki. Svarið kemur strax, flóknu útskýringarnar á eftir. Við bætum hana með því að fela sveitarfélögunum ábyrgð á öllum þjónustuþáttum (öðrum en beinni heilbrigðisþjónustu). Felum þeim ábyrgð á stýringu, og felum þeim fjárhagslega ábyrgð á verkefninu og tryggjum fjármögnun. Leyfum þeim að meta hvaða þjónusta er heppileg fyrir hvern og einn, og með hvaða hætti er best að tryggja vilja hins aldraða og mæta þörfum hans. Svo koma útskýringar.

Hvers vegna sveitarfélögin?

Því þau eru best til þess fallin að stýra og meta þörf fyrir nærþjónustu, og mun líklegri til að stýra fjármagninu þangað sem það nýtist best ef kostnaðurinn við dýrustu þjónustuna (hjúkrunarheimili) er líka á þeirra ábyrgð. Ef sveitarfélag hefur val um að bæta heimaþjónustu, sem tryggir fólki öryggi heima, eða að byggja og reka hjúkrunarrými sem kosta 15-20 milljónir á ári hverju, auk stofnkostnaðar, er líklegt að valið um að bæta þjónustu heima yrði auðveldara. Ef afleiðingarnar af því að bæta ekki heimaþjónustu verða þær að kostnaður flyst yfir á ríkið er ekki skrítið að sveitarfélögin velji önnur verkefni fram yfir bætta öldrunarþjónustu.

Hvernig nákvæmlega?

Við klárum nákvæma kostnaðargreiningu á rekstri hjúkrunarrýma, og fjármögnum þau í samræmi við það. Inni í þeirri greiningu yrði að vera horft til þess að smærri einingar kosta óhjákvæmilega meira fyrir hvert pláss, og að fjarlægðir frá þjónustustað hafa áhrif á hvenær þörf fyrir þjónustu verður meiri en hægt er að veita heima. Við skýrum það í lögum að þjónusta við eldra fólk, þar með talin þjónusta á hjúkrunarheimili, sé á hendi sveitarfélaga, með annarri þeirri þjónustu sem eldra fólk þarf. Við felum sveitarfélögunum að stýra heimahjúkrun og heimaþjónustu saman til að tryggja besta nýtingu starfsfólks og fjármuna. Þetta er þegar gert í Reykjavík með sérstökum samningi og að hluta annars staðar á höfuðborgarsvæðinu og gengur vel.

En vilja sveitarfélögin þetta verkefni?

Mörg þeirra vilja verkefnið, en þau eru líka mörg hrædd við að þau fengju ekki næga fjármuni til verksins. Slíkt þarf að tryggja. Einnig þarf að horfast í augu við það að mjög lítil sveitarfélög geta átt í erfiðleikum með að sinna þjónustu, og frekari verkefni gætu kallað á að þau þyrftu að vinna meira saman eða sameinast.

Snýst um þjónustu og þarfir

Á endanum snýst þetta um hvernig við viljum að búið sé um þjónustu við eldra fólk. Viljum við áfram hjakka í sama farinu þar sem ríki og sveitarfélög kasta boltanum á milli sín og ekkert gerist, eða viljum við leita leiða til að þjónustan batni og fjármagn nýtist betur. Ég held að valið sé auðvelt.

Höfundur er þingmaður VG.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×