Í tilkynningu segir að Magnús hafi allt í allt um sextán ára reynslu hjá Domino's og hann hafi meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri Domino's í Danmörku 2006 til 2007, rekstrar- og markaðsstjóri á Íslandi 2011-2014, framkvæmdastjóri Domino’s í Noregi 2014-2017 og sérfræðingur í rekstar- og markaðsmálum á erlendum mörkuðum Domino’s Pizza Group á árunum 2018-2019.
Magnús starfar hjá Sýn sem markaðs- og samskiptastjóri.
„Ég tek við keflinu af Birgi Erni sem ég þekki vel og leitt hefur félagið af myndarskap síðustu ár í gegnum mikla uppbyggingu og síðar áskoranir tengdar Covid-19. Domino’s er vörumerki með sterka stöðu á íslenskum veitingamarkaði og tryggan hóp viðskiptavina. Ég hlakka til þess að komast í pítsubransann á ný og vinna að enn frekari sigrum með einstöku teymi starfsmanna,” segir Magnús í áðurnefndri tilkynningu.
Þar er einnig haft eftir Birgi Bieltvedt, sem leiðir hóp fjárfesta sem hafa keypt Domino's á Íslandi að það sé virkilega ánægjulegt að fá Magnús til starfa. Hann þekki félagið og sögu þess mjög vel. Þá hafi hann reynslu af Domino's og sé þaulvanur rekstrar- og markaðsmálum vörumerkisins hér á Íslandi og í Skandinavíu.
Vísir er í eigu Sýnar hf.