Framlegð af vöru- og þjónustusölu Festar nam 5,1 milljarði króna á fyrsta ársfjórðungi og hækkaði um 19,5% miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri Festar sem birt var í dag en félagið rekur verslanir og þjónustustöðvar undir merkjum Krónunnar, N1 og Elko.
Alls jókst vöru- og þjónustusala um 11,1% milli ára og nam 20,9 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Framlegð af vörusölu var 24,6% á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 22,9% á sama tíma í fyrra.
Umtalsverð söluaukning í raftækjum og dagvöru
Tekjur af dagvörusölu, á borð við matvöru, hækkuðu um 18,1% á fjórðungnum og tekjur af raftækjasölu um 25,2%. Á sama tíma lækkuðu tekjur af eldsneyti og rafmagni um 8,3%. Tekjur af öðrum vörum og þjónustu lækkuðu um 4,2% milli ára.
Tekjur nýrra verslana skýra 1,1 milljarð króna af aukningu milli ára en alls jókst vöru- og þjónustusala Festar um 2,1 milljarð króna milli fyrsta ársfjórðungs 2021 og 2020.
Kostnaður vegna heimsfaraldurs Covid-19 var metinn 37 milljónir króna á fyrstu þremur mánuðum ársins en var 48 milljónir í fyrra. Eigið fé í lok mars var 29,2 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 34,8% samanborið við 35,7% í lok árs 2020.
Rekstrarkostnaður hækkaði um 436 milljónir og var 4.094 milljónir króna. Þar af hækkaði launakostnaður um 210 milljónir milli fjórðunga vegna samningsbundinna launahækkana
Vonast til að sjá aukin umsvif
Haft er eftir Eggert Þór Kristóferssyni, forstjóra Festi, í tilkynningu að öll félög samstæðunnar hafi bætt rekstur sinn samanborið við fyrsta ársfjórðung 2020 þrátt fyrir samkomutakmarkanir.
„Nú hillir undir lokin á heimsfaraldrinum þar sem bólusetningar ganga betur og vonandi getum við farið að horfa til betri tíma um mitt ár og aukin umsvif. ELKO hefur verið að auka söluna í gegnum vefverslun og sýnir fyrirtækið mikla aðlögunarhæfni við mjög breyttar aðstæður. Krónan hefur verið leiðandi í að bjóða upp á aukin ferskleika og heilsusamlega valkosti sem viðskiptavinir hafa tekið vel. N1 hefur þurft að fækka starfsfólki vegna samkomutakmarkana en kaupin á Ísey skyrbar hafa aukið umsvif á þjónustustöðvum félagsins.“
N1 keypti rekstur Ísey skyrbar á fjórum þjónustustöðvum sínum af Skyrboozt ehf. í júlí í fyrra. Skyrboozt rekur áfram skyrbari í verslunum Hagkaups.