Guardian greinir hins vegar frá því að stórfyrirtækið greiddi enga skatta í Lúxemborg, í höfuðstöðvum sínum í Evrópu.
Söludeild fyrirtækisins í Evrópu tilkynnti um tap upp á rúman milljarð evra til lúxemborgskra yfirvalda, sem gerði það að verkum að það sleppti við að þurfa að borga skatt.
Tapið, sem á að hafa orsakast af afsláttum og starfsmannakostnaði meðal annars, aflaði fyrirtækinu skattaafsláttar í landinu upp á 56 milljónir Bandaríkjadali.
Amazon fylgdi lúxemborgskum reglum að sögn New York Times og hefur greitt skatta sína í takt við tekjur í öðrum Evrópulöndum.
Skattfrelsi þeirra í Lúxemborg er þó líklegt til að verða vopn í höndum evrópskra stjórnmálamanna sem löngum hafa leitað leiða til að fá tæknirisann til að borga meiri skatta, segir í frétt NYT.