Hiti að fimmtán stigum og hlýjast norðaustantil Atli Ísleifsson skrifar 10. júní 2021 07:11 Á morgun verður lægðin kominn norðaustur fyrir landið og vindur snýr sér í norðlæga átt um land allt. Vísir/Vilhelm Lægð er nú stödd skammt suðvestur af Reykjanesi og er hún á hægri norðausturleið yfir landið. Víða má reikna með rigningu í fyrstu en þegar að lægðin nálgast, og skilin ganga yfir, breytist úrkoman í skúrir.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að það verði suðlæg átt í dag, víða fimm til tíu metrar á sekúndu, en að útlit sé fyrir að norðaustan vindstrengur af Grænlandssundi nái inn á Vestfirði. Má búast við norðaustan tíu til átján metrum á sekúndu á þeim slóðum og lengst af rigningu og þar sem hvassast verður á annesjum. Hiti á landinu verður fimm til fimmtán stig, hlýjast norðaustantil. „Á morgun verður lægðin kominn norðaustur fyrir landið og vindur snýr sér í norðlæga átt um land allt, víða 10-15 m/s. Rigning eða slydda á köflum, og gæti færð orðið erfið á fjallvegum, einkum á norðvestantil og einnig um landið norðaustanvert annað kvöld. Annað verður þó uppi á teningnum á sunnanverðu landinu, léttir til og víða bjartviðri síðdegis á morgun.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan og norðvestan 10-18 m/s, hvassast á Vestfjörðum, með rigningu eða slyddu á norðanverðu landinu, en bjart með köflum syðra. Hiti 2 til 14 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á laugardag: Austlæg átt 5-10, skýjað með köflum og úrkomulítið, en gengur í austan 10-15 með dálítlli rignignu sunnantil um kvöldið. Hiti frá 5 stigum norðaustanlands, upp í 14 stig á Vesturlandi. Á sunnudag: Austan- og norðaustan 8-15 og rigning með köflum, en slydda í innsveitum norðaustanlands. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á mánudag: Norðlæg átt og dálítil slydda eða rigning norðantil á landinu, en stöku skúrir syðra. Hiti 2 til 8 stig, en að 13 stigum sunnanlands. Á þriðjudag: Stíf austan- og norðaustanátt. Úrkomulítið, en fer að rigna á láglendi um austanvert landið. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðlæg átt og með slyddu eða rigningu um norðaustanvert landið, annars úrkomulítið. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Val Kilmer er látinn Erlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Fleiri fréttir Víða snjókoma, slydda eða rigning í nótt Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Slydda og snjókoma víða um land Sjá meira