Stöð 2 Sport heldur áfram að sýna frá þessum þáttum í sömu viku og þeir eru frumsýndir í Bandaríkjunum.
Í Hard Knocks þáttaröðinni fá myndavélarnar og hljóðnemarnir að vera eins og fluga á vegg á undirbúningstímabili hjá einu tilteknu félagi.
Hard Knocks þátturinn fær að þessu sinni að vera á bak við tjöldin hjá Dallas Cowboys í ár og eru margir spenntir fyrir því að sjá hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá einu allra vinsælasta liði Bandaríkjanna.
The wait is over! #HardKnocks is back and better than ever TONIGHT! pic.twitter.com/ake2VWKGJz
— NFL Films (@NFLFilms) August 10, 2021
Fáir eigendur eru litríkari eða afskiptasamari en einmitt Jerry Jones hjá Dallas Cowboys. Á hans tíma hefur félagið orðið það verðmætasta í Bandaríkjunum.
Cowboys liðið vann þrjár meistaratitla fljótlega eftir að hann eignaðist félagið en hefur nú ekki orðið NFL-meistari síðan 1995 eða í 26 ár. Pressan hefur aukist á hverju ári síðasta áratuginn en Jones er duglegur að koma með umdeildar yfirlýsingar og sækist mikið í sviðsljósið.
Það er líka mikill áhugi á Cowboys liðinu sem er kallað „America’s Team“ eða „Uppáhaldslið Ameríku“.
Það eru margar stjörnur í Dallas liðinu sem fá örugglega að láta ljós sitt skína í þáttunum.
Leikstjórnandinn Dak Prescott er að koma til baka eftir slæm meiðsli á miðju síðasta tímabili, hlauparinn Ezekiel Elliott þarf að sýna meira en í fyrra og varnarmaðurinn Jaylon Smith er engin smásmíði. Þá eru ótaldir útherjar eins og Amari Cooper og CeeDee Lamb.
.@EzekielElliott s first day of camp got off to a rough start. @DallasCowboys | #HardKnocksNow pic.twitter.com/mkQtoRlJuq
— NFL Films (@NFLFilms) August 2, 2021
Þættirnir taka oft fyrir ákveðna leikmenn og þar fá áhorfendur að kynnast lífi þeirra betur. Einhverjir nýliðar í liðinu verða örugglega í þeim hópi. Í fyrsta þættinum er sjónarhornið á fyrrnefndan Dak Prescott og endurkomu hans eftir slæm ökklameiðsli.
Þetta er sextánda árið þar sem Hard Knocks þátturinn er sýndur en í fyrra var fylgst með bæði Los Angeles Chargers og Los Angeles Rams. Oakland Raiders var árið 2019 og Cleveland Browns árið 2018.
Dallas hefur verið tvisvar áður í þáttunum en það var á upphafsárum hans eða 2002 (2. þáttaröð) og 2008 (4. þáttaröð).
Fyrsti þátturinn af Hard Knocks 2021 verður sýndur klukkan 20.40 á Stöð 2 Sport 2 í kvöld.

NFL er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NFL er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Beinar útsendingar frá öllum leikjum eru á NFL Game Pass sem hægt er að kaupa sem viðbót við Sportpakkann á 2.000 krónur á mánuði.