Skoðun

Iðn- og tækni­nám verður að efla

Bergþór Ólason skrifar

Grunnþáttur í stefnu Miðflokksins í menntamálum er að það þurfi að efla iðn- og tæknimenntun. Ekki á kostnað annars náms heldur til þess að svara vaxandi kröfum atvinnulífisins og þó ekki síður auknum áhuga ungs fólks á slíku námi. Horfum heildstætt á málið. Miðflokkurinn leggur áherslu á að menntakerfið endurspegla þörf þjóðarinnar fyrir aukna verðmætasköpun og framþróun á næstu árum og áratugum. Því er það tillaga flokksins að fjármagni verði sérstaklega beint í nám í tækni- og iðngreinum og stutt við þá sem vilja stunda slíkt nám. Um leið þarf að tryggja jafna stöðu allra nemenda, hvar sem er á landinu. Atvinnulífið þarf á því að halda að menntakerfið útskrifi fólk með þekkingu á þeim sviðum sem skipta mestu máli við efnahagslega uppbyggingu landsins. Það hefur lengi verið rætt um mikilvægi þess að efla iðn- og tækninám. Í mörgum tilvikum er slíkt nám dýrara en annað nám. Fjárveitingarnar þurfa að taka mið af því og stjórnvöld ófeimin við að eyrnamerkja fjárveitingar ákveðnu námi. Skattgreiðendur, einstaklingar og fyrirtæki borga reikninginn. Þeir eiga að geta haft áhrif á hvernig fjármagnið er nýtt. Slík nálgun auðveldar líka ríkisvaldinu að liðka fyrir samstarfi skóla og fyrirtækja og auka ásókn í námið.

Undanfarið höfum við séð aukna aðsókn í iðnmenntiun sem er vel. En þá bregður svo við að skólakerfið er ekki tilbúið. Það er augljóst að ófremdarástand hefur skapast síðustu ár og ber menntamálaráðherra fulla ábyrgð á því að hafa ekki brugðist við í tíma við því eins og birtist í því að Tækniskólinn synjaði 700 nemendum um skólavist í haust. Það er sorgleg niðurstaða. Skólameistari Tækniskólans hefur kallað eftir skýrri stefnu stjórnvalda. Fjármagn dugi ekki til að mæta aukinni eftirspurn. Við þessu þarf að bregðast sem fyrst því það er augljóslega óásættanleg staða að hafa áhugasama nemendur en engan skóla.

Viðtækar aðgerðir til styrktar iðnmenntun

Miðflokkurinn hefur heildstæða stefnu þegar kemur að iðnmenntun og má minna á afstöðu flokksins til löggildinga iðngreina sem er mikið framfaramál. Miðflokkurinn hefur stutt þá vinnu sem hefur verið í gangi um þetta og leggur áherslu á að málið sé skoðað með heildstæðum hætti og samtali við fulltrúa þeirra greina sem hlotið hafa löggildingu. Það er mikilvægt að fulltrúar iðngreinanna og neytenda taki þátt í þessari vinnu. Við teljum mjög mikilvægt að vinna að því að bæta starfsumhverfi þeirra aðila sem vinna í þessum iðngreinum á sama tíma og við treystum stoðir iðnmenntunar og aukum skilvirkni í eftirlitskerfinu.

Að lokum má minna á að það var að frumkvæði ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem komið var á fyrirkomulagi um inngreiðslu séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. Miðflokkurinn styður áframhaldandi nýtingu þess þó þannig að það sé ávallt hluti af heildstæðum aðgerðum en þessar aðgerðir nýtast vel til lausnar á vandamálum íbúðamarkaðarins. Nú fyrir kosningar hefur Miðflokkurinn lagt til að almenningur fái heimild til að setja 3,5 prósentustig af lífeyrisiðgjaldi sínu í sjóð sem nýta má til eigin fasteignakaupa.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi og skipar þar fyrsta sæti á lista flokksins í komandi kosningum.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×