Margt hefur gengið á í lífi geitarinnar en kveikt hefur verið í henni að minnsta kosti þrisvar. Geitin hefur einnig farið illa út úr veðrum og vindum en hún fauk um koll í óveðri árið 2011.
Árið 2015 brugðu stjórnendur IKEA á það ráð að hafa auka öryggisgæslu og geitin var vöktuð allan sólarhringinn. Það dugði þó ekki til en þá kveiknaði í geitinni út frá útiseríu.
Geitin staðið óáreitt síðustu ár
Árið 2016 var síðast kveikt í geitinni og hún hefur því fengið að standa svo gott sem óáreitt síðustu ár. IKEA höfðaði dómsmál í kjölfar brunans 2016 og dæmdi héraðsdómur þrjá aðila til að greiða skaðabætur upp á 150 þúsund krónur hvert.
Tæplega fimm þúsund manns lýstu yfir komu sinni í Facebook-viðburði árið 2019 en viðburðurinn bar yfirskriftina: „Kveikjum í geitinni, þau geta ekki stöðvað okkur öll.“
Upplýsingafulltrúi IKEA sagði þá í samtali við fréttastofu að um augljóst grín væri að ræða. Nokkrir mættu á viðburðinn en ekkert varð af brunanum.