Skúrir, él og hiti allvíða í kringum frostmark Atli Ísleifsson skrifar 19. nóvember 2021 07:11 Hitinn á landinu verður allvíða í kringum frostmark í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir suðvestan fimm til tíu metrum á sekúndu með skúrum eða éljum, en austanlands rofar hins vegar til og verður þurrt.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á norðvestanverðu landinu gangi hins vegar í norðaustan átta til þrettán metrum á sekúndu með éljagangi. Hitinn verður allvíða í kringum frostmark, en allt að fjögurra stiga hiti við suður- og vesturströndina. „Á morgun snýst síðan í norðanátt og á austurhelmingi landsins verður um strekkings vind að ræða. Léttskýjað og fallegt veður um landið sunnan- og vestanvert, en dálítil él norðaustantil. Frost um allt land, á bilinu 0 til 6 stig. Á sunnudag gengur síðan í allhvassa suðvestanátt með hlýnandi veðri. Búast má við rigningu eða slyddu á vesturhelmingi landsins, en austanlands ætti hann að hanga þurr.“ Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðan 8-15 m/s, hvassast austanlands, en hægari vindur um kvöldið. Léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert, en él norðaustantil. Frost 0 til 6 stig. Á sunnudag: Gengur í suðvestan og vestan 10-15, en 15-20 í vindstrengjum á norðanverðu landinu. Rigning eða slydda með köflum, en þurrt að kalla austanlands. Hiti 2 til 7 stig. Á mánudag: Suðvestan 13-20 og rigning, en úrkomulítið á austanverðu landinu. Hiti 3 til 8 stig. Á þriðjudag: Vestlæg eða breytileg átt, yfirleitt á bilinu 8-15 m/s. Víða slydda eða snjókoma, en rigning nærri suðurströndinni. Snýst í hvassa norðanátt seinnipartinn og talsverð snjókoma norðantil á landinu. Kólnandi veður. Á miðvikudag: Útlit fyrir hvassa norðanátt með snjókomu eða éljum, en úrkomulítið sunnantil á landinu. Frost 3 til 10 stig. Á fimmtudag: Snýst í vestlæga átt. Skýjað með köflum og úrkomulítið. Hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal Innlent Fjörutíu mínútna röð í einn og hálfan klukkutíma í morgun Innlent Rekstur hestaleigu stöðvaður Innlent Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Innlent Eyjar og sker tilheyra næstu jörð Innlent Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Innlent Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Innlent Mál áfengisnetverslana send aftur til lögreglu Innlent Steindór Andersen er látinn Innlent „Besta leiðin upp úr fátækt er að hjálpa fólki að eignast“ Innlent Fleiri fréttir Hæglætisveður um páskana Snjókoma eða slydda norðan- og austantil Misstu bílinn af veginum og þorðu ekki að bíða í honum Rigning í flestum landshlutum og kaldara loft Fremur hlýtt en bætir í vind í kvöld Rigning sunnan- og vestantil Hiti gæti farið í sextán stig norðantil Hiti gæti náð átján stigum fyrir norðan og austan Allt að 18 stiga hiti á morgun en súld og léttskýjað í dag Allt að 14 stiga hiti á Austurlandi í dag Hvassir vindstrengir á Snæfellsnesi en milt loft yfir landinu Hlýnar í veðri en kólnar ört eftir sólsetur Síðasta lægðin í bili gengur norður yfir landið Víða snjókoma, slydda eða rigning í nótt Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Sjá meira