Abidal er talinn hafa átt í ástarsambandi við Hamraoui. Hann var yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona þegar hún lék með liðinu.
Sem kunnugt er réðust tveir grímuklæddir menn á Hamraoui fyrir utan heimili hennar fyrr í þessum mánuði og börðu hana í fæturna með járnrörum. Samherji Hamraouis hjá Paris Saint-Germain, Aminata Diallo, var handtekin grunuð um að hafa skipulagt árásina en sleppt eftir yfirheyrslu.
Grunurinn beindist svo að Abidal-hjónunum eftir að í ljós kom að SIM-kort Hamraouis var skráð á Eric Abidal. Þá áttu árásarmennirnir að hafa öskrað á hana að hætta að sænga hjá giftum mönnum.
Talið er að Abidal og Hamraoui hafi átt í ástarsambandi og eiginkona hans til átján ára, Hayet, hefur beðið um skilnað. Í yfirlýsingu frá lögmönnum hennar í síðustu viku kom fram að Abidal hafi viðurkennt að hafa haldið framhjá henni með Hamraoui.
Abidal er greinilega nokkuð örvæntingarfullur því í gær birti hann færslu á Instagram þar sem hann grátbað Hayet um að fyrirgefa sér.
„Hvaða ákvörðun sem þú tekur verður þú alltaf konan í mínu lífi og sérstaklega móðir stórkostlegu barnanna okkar. Ég á þessa auðmýkingu skilið þótt hún drepi mig. Vonandi mun guð fyrirgefa mér einn daginn,“ skrifaði Abidal á Instagram. Þau Hayet hafa verið gift síðan 2003 og eiga fimm börn saman.
Abidal lék með Barcelona á árunum 2007-13 og var svo yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu 2018-20.