Margir voru ánægðir með Skaupið, aðrir ekki. Eins og alltaf.
Höfundar Áramótaskaupsins 2021 voru þau Vilhelm Neto, Bergur Ebbi, Hugleikur Dagsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Gagga Jónsdóttir og Lóa Hjálmtýsdóttir. Reynir Lyngdal leikstýrði Skaupinu líkt og síðastliðin tvö ár og var það Republik sem sá um framleiðsluna.
Að neðan má sjá nokkur tíst Íslendinga um Áramótaskaupið í ár.
Ég er konan sem fór aldrei að gosinu #skaupið
— Sigridur Elin Gudlau (@EllaSiggGud) January 1, 2022
Fínt skaup og flokksgæðingur Framsóknar Lilju hitti beint í mark. #skaupið
— Svala Jonsdottir (@svalaj) January 1, 2022
Er þegar búinn að rembast við að horfa aftur á skaupið. Þetta var alveg glatað og ferlega slappt skaup. Vonandi verður fá sömu höfundarnir ekki aftur að gera skaupið.
— Friðjón V. Sigurðsson (@fridjonValtyr) January 1, 2022
Ég hef ekkert útá setja með leikstjórn enda var leikurinn fínn. En spaugið lélegt. #skaupið
Skaupið í ár var fyndið á köflum en yfir það heila, því miður, mest megnis forgettable. Samt með sína ljósu punkta. #skaupið
— Alexandra Briem (@OfurAlex) January 1, 2022
Lilja og hesturinn var menningarlegasta atriðið. Örugglega vísun í þegar Kalíkúla var með áform um að skipa uppáhalds hestinn sinn sem ræðismann. #skaupið
— Halldór Auðar Svansson (@tharfagreinir) December 31, 2021
#skaupið Talningin og matseðillinn á hótelinu, full hús stiga.
— Ívar Arason (@ivarara) January 1, 2022
Lögin góð. Helga Braga 10/10. Onlyfans og Birgir Þórarinsson. Alltof mikið covid samt. Pínu vonbrigðum. #skaupið
— Magnús Sigurbjörnsson (@sigurbjornsson) December 31, 2021
Frábært lokalag #skaupið.
— Örn Úlfar Sævarsson (@ornulfar) December 31, 2021
Af hverju var Bergur Ebbi ekki í öllum atriðunum? Þá hefðu allir í mínu boði hlegið miklu meira. #skaupið
— Sunna Kristín (@sunnakh) December 31, 2021
Enn og aftur byrjar nýtt ár með tuðinu í þjóðarsálinni. Horfði á skaupið með unglingunum, sem eru orðin nógu gömul til að fatta alla sketsana. Frussuðum úr hlátri og það er hellað töff að fá þessa kynslóð til að hlægja að ríkisreknu gríni! Vel gert #áramótaskaup #skaupið #ruv
— Guðrún Gyða Eyþórs (@ggarnadottir) January 1, 2022
Geggjað skaup Rammaði inn þjóðarsálina og árið 2021 frá A-Ö #skaupið21 #skaupið #áramótaskaup pic.twitter.com/Sn0xKaopBR
— Ásmundur Einar (@asmundureinar) December 31, 2021
Ég elska þessa drengi svo mikið. #skaupið pic.twitter.com/ElhbEEnsry
— Karen Kjartansdottir (@karenkjartansd) December 31, 2021
#skaupið: Þrisvar hlegið upphátt - elskaði öll lögin - kvíðaprófssketsinn og lokalagið best
— Laufey H. Guðmundsd. (@HLaufey) January 1, 2022
Ef ég væri mjög jákvæður maður með jákvæðar skoðannir með allt og líka um skaupið í ár þá er ég pottþétt kominn með alvarlegt tilvik af covid /delta og omikron.
— Friðjón V. Sigurðsson (@fridjonValtyr) December 31, 2021
Kveðja einn af þeim sem er enn greindur með mikla neikvæðni #skaupið #skaup
Mér fannst #skaupið æði! En mér finnst skaupið reyndar alltaf gott
— Þorbjörg Þorvaldsdóttir (@torbjorg) December 31, 2021
Áramótaskaupið geggjað!!
— Steinunn (@SteinunnVigdis) December 31, 2021
Skoðun sem ég stend við #skaupið
Þórólfur er alveg low key daddy
— Páll Sigurður (@Bara_Palli) December 31, 2021
-Bassi Maraj
Lína kvöldsins #skaupið
Enn eitt skaup þar sem COVID er lýst eins og yoga retreat. Mikið ofboðslega kemur þetta úr þröngum hugmyndaheim. Mýtan um stéttlausa samfélagið er sterk. #Skaupið
— Thor Fanndal (@fanndal) December 31, 2021
Ef skaupið væri fótboltamaður #skaupið pic.twitter.com/6fbTAOo9kA
— Egill (@Agila84) December 31, 2021
Þarna er hún, veiran skæða #skaupið pic.twitter.com/vaMj8pXBEx
— Guðný Ljósbrá (@gudnyljosbra) December 31, 2021
Djarft að fá Lilju Alfreðs bara til að leika sjálfa sig. #skaupið
— Halldór Auðar Svansson (@tharfagreinir) December 31, 2021
COVID19 gaf okkur 2 góð skaup í röð.
— Jóhanna Jakobsdóttir, PhD (@jjakobsdottir) January 1, 2022
Samt ekki þess virði.
Gleðilegt ár!#skaupið
Engar áhyggjur, skaupið fyrir 60+ verður á dagskrá á morgun
— Björn Reynir (@bjornreynir) January 1, 2022
-Bjarki bróðir í símtali við mömmu.#skaupið