Í tilkynningu frá Hlöllabátum segir að Jón Friðrik sé uppalinn á Húsavík en hafi búið og starfað bæði á Akureyri og Reykjavík síðustu ár.
„Hann er menntaður matreiðslumeistari og hefur undanfarin ár starfað sem stjórnandi í veitingaiðnaði. Jón Friðrik var veitingastjóri hjá Kea hótelum frá árinu 2013 til ársins 2020 eða þar til hann var ráðinn til Hlöllabáta, þar sem hann hefur síðustu mánuði gegnt starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs.“
Greint var frá því í síðustu viku að Sigmar og Óli Valur Steindórsson, eigendur Hlöllabáta ehf., hafi ákveðið að skipta eignum á milli sín eftir tæplega tveggja ára samstarf. Tæki Sigmar að sér rekstur Minigarðsins og Barion Bryggjuna og Óli Valur við rekstri Hlöllabáta og Barion Mosó.
Haft ef eftir Jóni Friðriki að hann sé mjög spenntur að taka við starfi framkvæmdastjóra hjá jafn öflugu fyrirtæki og samstæða Hlöllabáta sé. „Þetta eru krefjandi tímar og það hefur verið lærdómsríkt að standa í veitingarekstri. Það er mikill hugur og samstaða í hópnum og hefur starfsfólkið staðið sig gífurlega vel og ætlum við okkur að stefna áfram veginn og reyna að gera enn betur.“