Fólk var hvatt il að mæta með eigið áfengi og var veislan haldin til að fagna vinnu ríkisstjórnarinnar í baráttunni við kórónuveiruna.
Forsætisráðherrann baðst afsökunar í dag á því að hafa sótt veisluna. Hann sagðist þó hafa talið að um vinnuviðburð væri að ræða ef eftir á að hyggja hefði hann átt að stöðva veisluna.
„Ég hefði átt að finna aðra leið til að þakka þeim og ég hefði átt að sjá að þó veislan væri tæknilega séð í takti við samkomutakmarkanir, myndu milljónir manna ekki sjá það þannig,“ sagði Johnson.
Sjá einnig: Boris Johnson biðst afsökunar á veisluhöldum í samkomubanni
Fjölmiðlar í Bretlandi hafa varið deginum í að ræða við fjölskyldumeðlimi fólks sem dó vegna Covid-19 á þeim tíma sem veislan var haldin og áðurnefndar takmarkanir voru í gildi.
Nokkur sem Sky News ræddu við voru meðal annars ósátt við það að á sama tíma og fjölskyldumeðlimir þeirra dóu einir og ekki hefði verið mögulegt að halda hefðbundnar jarðarfarir vegna samkomutakmarkana hafi forsætisráðherrann, sem samþykkti þær, verið í samkvæmi.
Þá sögðu einhver að útskýring Johnsons um að hann hefði ekki vitað að þetta væri samkvæmi, væri móðgandi.
Blaðamenn BBC ræddu einnig við nokkra um málið. Þar á meðal var Amanda McEgan en dóttir hennar dó úr krabbameini en hennar síðasta mánuð á lífi gat hún ekki hitt vini sína og fjölskyldu vegna takmarkana.
Hér má sjá ummæli konu sem heitir Hannah Brady við Sky News.
On 20 May 2020, Hannah Brady was getting her father's death certificate signed after he passed away from #COVID19 - the same day Boris Johnson confessed to attending a Downing Street garden drinks party.https://t.co/JlaHiC2h4X
— Sky News (@SkyNews) January 12, 2022
📺 Sky 501, Virgin 602, Freeview 233 and YouTube pic.twitter.com/KWVma9VOva
Stjórnarandstaðan er nokkuð samstíga í því að kalla eftir afsögn forsætisráðherrans en samkvæmt frétt BBC hafa nokkrir háttsettir þingmenn Íhaldsflokksins gert það einnig. Þeirra á meðal er skoski þingmaðurinn Douglas Ross. Hann sagðist hafa átt erfitt samtal við Johnson í dag og sagðist ætla að lýsa því formlega yfir við nefnd sem heldur utan um leiðtogasæti Íhaldsflokksins að hann styddi forsætisráðherrann ekki.
Ef 54 þingmenn senda samskonar yfirlýsingu til nefndarinnar mun hefjast formlegt ferli sem gæti leitt til þess að Johnson yrði vikið úr leiðtogasætinu.
„Hann er forsætisráðherrann, það er hans ríkisstjórn sem setti þessar reglur og hann verður að bera ábyrgð á gjörðum sínum,“ sagði Ross samkvæmt BBC.
Ráðherrar hafa hvatt þingmenn til að bíða eftir niðurstöðum rannsóknar um það hvort reglur hafi verið brotnar í samkvæmum við Downingstræti. Niðurstöðurnar eiga að liggja fyrir á næstunni.
William Wragg, annar áhrifamikill meðlimur Íhaldsflokksins, sagði við BBC í dag að staða forsætisráðherrans væri óverjanleg. Það ætti ekki að vera verk þeirra embættismanna sem framkvæma áðurnefnda rannsókn að ákveða framtíð forsætisráðherrans eða hver stjórni Bretlandi.