„Hann bað mig að giftast sér. Og alveg eins og í öllum lífum á undan þessu og í öllum lífum sem eftir fylgja, sagði ég já... og svo drukkum við blóð hvors annars.“
Ekki fylgdi sögunni hvort um grín eða alvöru væri að ræða en fylgjendur þeirra höfðu ýmsar skoðanir á þessu í athugasemdum. Þetta verður að teljast óhefðbundin leið til að innsigla ástina og trúlofun.
Vampírulegar myndir af þeim í tímaritinu GQ á dögunum koma fljótt upp í hugann. Parið hefur síðan 2020 verið einstaklega duglegt að vekja athygli fyrir samskipti sín og hvernig þau tala um sambandið.
Leikkonan og tónlistarmaðurinn kynntust við tökur á kvikmynd hennar Midnight in the Switchgrass og opinberuðu samband sitt árið 2020.
Machine Gun Kelly sýndi trúlofunarhringinn á Instagram sem er alveg einstakur. Hringurinn er í raun tveir sérsmíðaðir hringar sem festast saman með segli. Á öðrum er grænn demantur en á hinum er glær. Ástæðan er sú að þetta eru fæðingarsteinar þeirra beggja. Í færslunni segir hann frá því að þau hafi orðið ástfanginn undir þessu tré og því valdi hann þennan stað fyrir bónorðið.
Samband þeirra er augljóslega einstakt og hafa þau talað um það í viðtölum að þau séu „twin flames“ og hafi alltaf verið ætlað að vera saman. Hér fyrir neðan má sjá tónlistarmyndbandið við lagið Bloody Valintine sem Machine Gun Kelly gaf út í maí árið 2020. Megan Fox leikur með honum í myndbandinu.
Megan Fox var áður með leikaranum Brian Austin Green. Þau byrjuðu saman árið 2004 og voru saman með einhverjum hléum í fjölda ára. Saman eiga þau þrjá syni, þá Noah Shannon, Bodhi Ransom og Journey River. Þau skildu svo endanlega í maí árið 2020.