Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að það sem réði úrslitum um það að Hálfdán Óskarsson valdi Bolungarvík undir mjólkurstöðina var að þar var veglegt fiskvinnsluhús á lausu. Staðsetning fjarri aðalmarkaðnum í borginni hræddi ekki.
„Flutningskostnaðurinn náttúrlega mun hærri hjá okkur heldur en ef við værum í Reykjavík. En það kemur bara margt annað á móti,“ segir Hálfdán Óskarsson, framkvæmdastjóri Örnu.
„Við erum fyrirtæki hérna í litlu samfélagi og ég held að Bolvíkingar séu nú nokkuð stoltir af fyrirtækinu,“ segir Hálfdán.
Meðal 42 starfsmanna er Bolvíkingurinn Guðlaug Brynhildur Árnadóttir en hún var í hópi þeirra sem misstu vinnuna þegar rækjuvinnsla í húsinu fór á hausinn.

„Og ég var atvinnulaus og þurfti að fara að sækja vinnu á Ísafjörð. Var þar í fimm ár. Svo þegar þetta fyrirtæki kom þá færði ég mig hérna yfir. Og það er bara gott að vera hérna í bænum með vinnu,“ segir Guðlaug, sem er gæðastjóri Örnu.
Frá upphafi var mörkuð sú sérstaða að framleiða laktósafríar mjólkurvörur.
„Ég held að við höfum líka náð að sýna það að, ef þú hefur áhuga á að stofna fyrirtæki, þá þarftu ekki endilega að gera það í Reykjavík. Þú getur alveg gert það úti á landi og náð bara að byggja upp öflugt fyrirtæki.
Þannig að við erum bara mjög stolt af því að vera hérna í Bolungarvík og komum til með að vera hér áfram,“ segir Hálfdán.

En drekka allir í Bolungarvík bara mjólk frá þessu fyrirtæki?
„Já, hún er best,“ svarar Guðlaug.
-Þýðir þá ekkert að koma með annarskonar mjólk inn í bæinn?
„Nei, nei, nei. Þegar koma gestir og ef þeir koma með hina mjólkina – sem við framleiðum ekki – þá mega þeir ekki einu sinni setja hana í ísskápinn hjá mér,“ segir Guðlaug og hlær.
Nánar verður fjallað um mjólkurvinnsluna Örnu í þættinum Um land allt á Stöð 2 næstkomandi mánudag, sem er sá seinni af tveimur um Bolungarvík.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins: