Það logar allt í deilum innan verkalýðshreyfingarinnar þar sem tvær fylkingar berjast um völd innan ASÍ. Þeim má skipta upp nokkurn veginn á þann hátt sem er rakinn hér að neðan.
Stærsta aðildarfélag ASÍ er Starfsgreinasambandið (SGS), sem á rúmlega 40 prósent fulltrúa á þingum ASÍ. Þar koma saman 290 þingfulltrúar aðildarfélaganna til dæmis til að greiða atkvæði um næsta forseta sambandsins. Næsta þing verður haldið í október í haust.
SGS skiptist síðan niður í minni undirfélög.
Leiðtogar undirfélaga skiptast í tvo hópa
Efling er stærst þeirra en nýkjörinn formaður þess Sólveig Anna hefur verið nokkuð gagnrýnin á forystu Alþýðusambandsins og með henni nokkrir foringjar minni stéttarfélaga á borð við Verkalýðsfélag Akraness, Framsýn og Verkalýðsfélag Grindavíkur.
Þau félög innan ASÍ sem standa með Drífu Snædal, núverandi forseta ASÍ, eru til dæmis Eining-Iðja, Báran, AFL og Hlíf.
Hér er gróf skipting á helstu aðildarfélögum SGS eftir því hvort formenn þeirra hafi talað með núverandi forystu ASÍ eða gegn henni:

Þeir sem hafa talað gegn forystu ASÍ:
- Sólveig Anna Jónsdóttir - Efling
- Vilhjálmur Birgisson - Verkalýðsfélag Akraness
- Aðalsteinn Baldursson - Framsýn
- Hörður Guðbrandsson - Verkalýðsfélag Grindavíkur
Þeir sem hafa staðið með forystu ASÍ:
- Björn Snæbjörnsson, núverandi formaður SGS - Eining-Iðja
- Halldóra Sigríður Sveinsdóttir - Báran
- Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir - AFL
- Kolbeinn Gunnarsson - Hlíf
Önnur félög SGS eru öllu minni og erfitt er að staðsetja leiðtoga þeirra í deilunni. Svo verður að hafa þann fyrirvara á að fulltrúar þessara félaga á þingi ASÍ verða ekki að fylgja sannfæringu formanna sinna heldur kjósa þeir næsta forseta sjálfstætt í nafnlausri kosningu.
Það er síðan Landssamband íslenskra verslunarmanna sem er næststærsta undirfélag ASÍ og á um 34 prósent fulltrúa á þingi ASÍ, eða samtals 99 fulltúa á móti 120 fulltrúum SGS. Saman eru SGS og LÍV því með 219 af 290 þingfulltrúum.
Innan þess er VR langstærst en formaður þess hefur verið mjög gagnrýninn á Drífu upp á síðkastið.
Vilja nýjan forseta
„Þessar deilur eru uppi á borðum og fyrir allra augum en hafa verið til staðar nánast frá því að Drífa tók við,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í samtali við fréttastofu í dag.

„Þetta hefur gert það að verkum að Alþýðusambandið er ekki það afl sem við viljum sjá Alþýðusambandið verða.“
Þannig þið viljið nýjan forseta yfir ASÍ?
„Já.“
Sjálf vildi Drífa ekki veita viðtal í dag og sagðist hafa mikilvægari verkefnum að sinna en að munnhöggvast við aðra verkalýðsleiðtoga í fjölmiðlum. Hún sagðist ekki vera búin að ákveða hvort hún gefði kost á endurkjöri á næsta þingi ASÍ
Það er þó ljóst að það verður líklega á brattann að sækja fyrir hana sækist hún eftir endurkjöri.
Næstu mánuðir ráði úrslitum
Breytinga má vænta á stærstu aðildarfélögum ASÍ á næstunni en í næstu viku verður nýr formaður Starfsgreinasambandsins kjörinn.
Sólveig Anna tekur svo við formennsku Eflingar þann 8. apríl næstkomandi eftir að hún náði kjöri á ný um miðjan síðasta mánuð.
„Þannig að ég myndi segja að næstu vikur og mánuðir ráði svolítið úrslitum um það hvernig strúktúr verður á Alþýðusambandinu eftir næsta Alþýðusambandsþing sem verður í haust,“ segir Ragnar Þór.
Sjálfur segist hann ekki með tillögu að næsta forseta ASÍ.
Vilt þú verða næsti forseti ASÍ?
„Nei takk, ómögulega. Ég hef engan áhuga á þessu hlutverki,“ segir Ragnar Þór.