Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Lyon snéru taflinu við gegn Juventus í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Liðið vann 3-1 sigur eftir að hafa tapað fyrri leiknum 2-1 og er því á leið í undanúrslit.
Sara sat á varamannabekknum stærstan hluta leiksins, en kom inn á sem varamaður og lék seinustu mínúturnar.
Norska landsliðskonan Ada Hegerberg kom Lyon yfir á 33. mínútu og aðeins tveimur mínútum síðar var liðið komið með forystu í einvíginu eftir mark frá Melvine Malard.
ADA HEGERBERG SCORES FOR LYON 🙌 @AdaStolsmo
— DAZN Football (@DAZNFootball) March 31, 2022
🇬🇧🎙👉 https://t.co/wzyUWUdNWU
🇫🇷🎙👉 https://t.co/UvOtBofJJE
🇮🇹🎙👉 https://t.co/vZiE6tkt8b pic.twitter.com/nvU9U6ps3R
Staðan var því 2-0 þegar flautað var til hálfleiks, en Catarina Macario breytti stöðunni í 3-0 á 73. mínútu með frábæru marki og Lyon því komið með tveggja marka forskot í einvíginu.
ARE YOU KIDDING WITH THAT @catarinamacario 🤯
— DAZN Football (@DAZNFootball) March 31, 2022
🇬🇧🎙👉 https://t.co/wzyUWTWd5m
🇫🇷🎙👉 https://t.co/UvOtBnY8S6
🇮🇹🎙👉 https://t.co/vZiE6tC4wL pic.twitter.com/zdxUMrj7R0
Andrea Staskova lagaði stöðuna fyrir Juventus þegar um fimm mínútur voru til leiksloka, en nær komst liðið ekki og 3-1 sigur Lyon var staðreynd. Lyon vann einvígið því samanlagt 4-3 og er á leið í undanúrslit þar sem liðið mætir Paris Saint-Germain.
Leikurinn var í beinni útsendingu á Youtube og hægt er að horfa á hann hér fyrir neðan.