Rafíþróttir

Tilþrifin: Kjóstu bestu tilþrif tímabilsins í Ljósleiðaradeildinni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ofvirkur og Peterr eiga bestu tilþrif tímabilsins.
Ofvirkur og Peterr eiga bestu tilþrif tímabilsins.

Lesendum Vísis gefst kostur á að kjósa bestu tilþrif tímabilsins í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO í boði Elko, en kosningin stendur á milli tveggja leikmanna.

Tilþrif tímabilsins eru eins og áður segir í boði Elko, en sigurvegarinn fær að launum 30.000 króna gjafabréf í Elko. Kosningu lýkur í næstu viku og tilkynnt verður um sigurvegarann á föstudaginn.

Leikmennirnir tveir sem eru tilnefndir eru annars vegar Ofvirkur, leikmaður Ármanns, og hins vegar Peterr, leikmaður Þórs.

Ofvirkur sýnir listir sínar á neðra svæði kortsins Nuke. Hann er einn eftir í sínu liði á móti tveimur í liði XY. Ofvirkur byrjar á því að fella Pandaz í liði XY og setur sig í einvígi á móti leikmanninum j0n í XY. Hann leikur á j0n eins og sjá má í klippunni og lætur tímann líða sér í hag. Þegar j0n ætlar að flýja því tíminn er naumur áður en sprengjan springur, þá tekur Ofvirkur hann út og sigrar lotuna kostulega.

Klippa: Elko Tilþrif tímabilsins: Ofvirkur

Peterr, leikmaður Þórs, sýnir frábær tilþrif í byrjun seinni hálfleiks í leik Þórs á móti Fylki í Inferno. Allir liðsfélagar Peterr féllu í lotunni, og skyldu Peterr einan eftir á móti fjórum leikmönnum Fylkis. Peterr tók út tvo Fylkismenn á A hlið kortsins og náði að koma niður sprengjunni og setti stöðuna í einn á móti tvem í lotunni. Peterr spilaði listilega og náði að fella þá tvo Fylkismenn sem eftir voru, og náði ásnum. Frábærlega gert hjá Peterr.

Klippa: Elko tilþrif tímabilsins: Peterr





×