Tryggvi Sveinn Eyjólfsson, yngsti meðhjálpari landsins stóð sig einstaklega vel í guðþjónustu í Saurbæjarkirkju á Rauðasandi í gær, föstudaginn langa. Prestur þar er Kristján Arason frá Helluvaði við Hellu í Rangárþingi ytra.Margrét Brynjólfsdóttir.
Tryggvi Sveinn Eyjólfsson er yngsti meðhjálpari landsins. Hann býr á Patreksfirði og þjónaði í gær, sem meðhjálpari í fyrsta sinn við guðsþjónustu í Saurbæjarkirkju á Rauðasandi í Patreksfjarðarprestakalli hjá sr. Kristjáni Arasyni, sóknarpresti.
Þetta kemur fram á kirkjan.is Þar segir enn fremur að Tryggvi Sveinn sé 14 ára og að faðir hans og afi voru meðhjálparar á Rauðasandi. Hann er því þriðju ættliðurinn og sá yngsti, sem tekur við keflinu.
Tryggvi Sveinn, sem er aðeins 14 ára og orðinn meðhjálpari eins og pabbi hans og afi voru líka á Rauðasandi.Margrét Brynjólfsdóttir.
Þá var móðurafi hans prestur í Stafholti í Borgarfirði, sr. Brynjólfur Gíslason.
Tryggvi Sveinn og sr. Kristján eftir guðþjónustu gærdagsins.Margrét Brynjólfsdóttir.