Ásthildur Gunnlaugsdóttir förðunarfræðingur er eigandi Mist og Co. og bauð hún förðunarfræðingum, tískubloggurum og fleiri flottum konum á þennan fallega viðburð. Á meðal gesta í þessu blómum skreytta boði voru Sunneva Einars, Sólrún Diego, Lína Birgitta. Ástrós Trausta og einnig Kristín Pétursdóttir þáttastjórnandi Make up.
Förðunarsnillingar eins og Elín Reynis, Ingunn Sig og Heiður Ósk, létu sig ekki vanta. Ingunn og Heiður Ósk eru stjórnendur Snyrtiborðsins með HI beauty hér á Vísi og eigendur förðunarskólans Reykjavík Makeup School.

„Það var mikil þörf á þessari vöru, bæði fyrir alla þá sem nota förðunarbursta og einnig fyrir
förðunarfræðinga á Íslandi. Áður fyrr var fólk aðallega að þrífa burstana sína við baðherbergisvaskinn með sápu og vatni, en það er afar tímafrekt og tekur burstana langan tíma að þorna. Með notkun Mist & Co. tekur það aðeins nokkrar mínútur að þrífa allt förðunarburstasettið,“ segir Ásthildur í samtali við Lífið um ástæðu þess að hún stofnaði fyrirtækið.

„Svo fer það líka mun betur með húðina að nota hreina förðunarbursta en óhreinir burstar geta valdið óþægindum í húðinni.“

Burstahreinsisprey Ásthildar spiluðu lykilhlutverk á viðburðinum og voru skreytingar og kokteilar í tveimur litum spreyjanna, bleikum og grænu.
„Viðtökurnar hafa verið mjög góðar. Fólki finnst það eiginlega bara ótrúlegt hvað hreinsirinn virkar vel og það gleður mig alltaf að heyra ummæli þeirra sem prófa Mist & Co. í fyrsta sinna,“ segir Ásthildur.


„Það var ótrúlega gaman að fara í gegnum allt ferlið, að koma með nýja vöru á markaðinn, finna hina fullkomnu formúlu og framleiða svo loksins Mist & Co., allt frá því að ég var að blanda formúluna heima í stofu og upp í standa í búðum. Svo finnst mér líka gaman að sjá að makeup skólarnir hérna eru að nota Mist & Co. í kennslunni hjá sér.“

Ásthildur hefur mikla ástríðu fyrir því sem hún er að gera og hefur haft áhuga á förðun frá því í menntaskóla.
„Mesta áskorunin var að finna hina fullkomnu formúluna og öll efnin í hana. Á tímabili átti ég yfir 200 ilmolíur og tugi brúsa með allskonar efnum í áður en ég fann hin réttu fyrir Mist & Co.“

Samhliða því að reka fyrirtækið Mist og Co. og framleiða eigin hreinsivörulínu starfar Ásthildur sjálfstætt sem förðunarfræðingur.

