Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær að innlendir ferðaþjónustuaðilar stæðu frammi fyrir mönnunarvanda. Viðsnúningur eftir faraldurinn hefði verið hraðari en gert var ráð fyrir. Nú væri svo komið að uppselt sé á mörgum hótelum og bílaleigum í sumar.
Sjá nánar: Slegist um kokka og þjóna í ferðaþjónustunni
Egill Jóhannsson er forstjóri Brimborgar og rekur líka bílaleigurnar Thrifty og Dollar. Hann segist hvorki glíma við mönnunarvanda né að uppselt sé á leigunum því hann hafi séð þessa umframeftirspurn fyrir.
„Það sem mér finnst að Íslendingar ættu að fókusera á í ferðaþjónustunni er meira að horfa á verðmætaaukninguna frekar heldur en að telja einstaklingana sem koma til landsins. Þetta er náttúrulega umræða sem er búin að vera lengi og kannski er ekki auðvelt að fara þangað en það hlýtur að vera megin markmiðið fyrir land eins og okkar að fara verðmætaaukningarleiðina. Við erum fámenn þjóð og með verðmæta náttúru, há laun – líklega þau hæstu í heimi - og það er mönnunarvandi hér og líka víða um heim.“
Að mati Egils ættu Íslendingar heldur að einbeita sér að hágæðaferðaþjónustu og stýra í auknum mæli verðlagningu eftir eftirspurn.
En óttastu ekkert að eftirspurnin dragist saman ef menn fara að hækka verð?
„Mjög góð spurning. Við fengum, Íslendingar, góða generalprufu sumarið 2021 þegar COVID-gluggi opnaðist seinni part júlí og ágúst en þá var alveg gríðarlegur ferðavilji. Við fengum gríðarlegan fjölda ferðamanna“
Þetta hafi hann séð glöggt í fyrra en líka í byrjun árs og honum hafi verið ljóst í hvað stefndi.
„Við sáum það sama strax í janúar og febrúar að þetta sumar yrði alveg risastórt. Jú, það er alltaf hætta en verðum við ekki hreinlega að sætta okkur við færri ferðamenn en verðmætari?“
Egill segir að þessi leið, sem hann vill að fleiri fari, hafi reynst honum vel.
„Við tókum þennan pól í hæðina og vorum ekkert að flýta okkur að taka of mikið af bókunum mjög snemma. Við gerðum ákveðna tekju-og bókunaráætlun fyrir sumarið og eins og staðan er núna þá eigum við nóg af bílum í leigunum okkar fyrir júní, júlí og ágúst – þessa risastóru mánuði – en erum nú samt komnir yfir tekjuáætlun fyrir sumarið þannig að það er hægt að gera þetta.“
Egill segir að stjórnvöld verði að marka sér stefnu í ferðamannamálum. Ísland ætti að geta verið í fararbroddi í sjálfbærni. „Við höfum alveg séð að það er of mannmargt á ákveðnum ferðamannastöðum en á sama tíma er ekki nóg af ferðamönnum á öðrum stöðum. Hvernig getum við dreift álaginu betur um landið og náð meiri verðmætum út úr öllu um leið og við pössum upp á að ekki sé gengið á náttúruna?“
Ferðaþjónustuaðilar geti ekki gert þetta einir og því þurfi stjórnvöld að koma inn í og marka stefnu til framtíðar. Í því samhengi þurfi að horfa marga áratugi fram í tímann.
„Stjórnvöld verða að koma inn í og hjálpa stöðunum sem færri koma á, til dæmis með betri samgöngum, flugsamgöngum og þess háttar og þó það þurfi að borga eitthvað með því til að byrja með þá hjálpar þetta öllum, þetta hjálpar náttúrunni, ferðaþjónustunni í heild, efnahagslífinu og fleiri njóta þá afrakstursins af ferðaþjónustunni.“