Drengurinn sem fæddist í apríl hlaut nafnið Emil Magnús Einarsson. Að sögn Einars sýndi sá litli sínar bestu hliðar í tæplega hundrað ára gömlum skírnarkjól sem ættboginn hefur notað frá því að amma Einars var skírð í honum árið 1926.
Séra Sigurður Árni skírði nýjustu viðbótina í fjölskylduna á heimili þeirra í viðurvist fjölskyldu og vina. Emil er fyrsta barn Millu en Einar á tvær dætur úr fyrra hjónabandi.
Nafnið bræðingur úr ýmsum áttum
„Þetta var bara dásamlegur dagur og gaman að gleðjast með fjölskyldu og vinum eftir svolítið langa törn í flutningum og kosningabaráttu með svona lítinn unga. Þannig að það var bara ótrúlega gaman að fá alla hingað heim,“ segir Einar í samtali við Vísi.
Hann bætir við að nafnið Emil Magnús komi úr ýmsum áttum. Það sé til að mynda sótt til Emilíu, ömmu Millu, og einnig sé um að ræða bræðing af eiginnöfnum foreldranna. Að lokum beri bæði faðir og stjúpfaðir Millu nafnið Magnús.
Drengurinn okkar @millaosk verður skírður 17 júní. Ég hef stungið upp á því að hann fái nafnið Borgar Búi Einarsson. Milla er efins. Eða réttara sagt andsnúin hugmyndinni. Sem er óskiljanlegt.
— Einar Þorsteinsson (@Ethorsteinsson) June 14, 2022
Einar gantaðist nýverið með það að hann hafi stungið upp á nafninu Borgar Búi við frekar dræmar viðtökur. Hann segir nafnið ekki hafa komið til greina að þessu sinni.
„Borgar Búi var felldur í atkvæðagreiðslu á fjölskyldufundi,“ segir Einar og hlær.