Hvassir vindstrengir á norðanverðu Snæfellsnesi Atli Ísleifsson skrifar 21. júní 2022 07:07 Það gengur í sunnan kalda eða strekking og fer að rigna í dag. Vísir/Vilhelm Lægð er nú að myndast á Grænlandshafi og hún gengur til austurs fyrir norðan land í dag. Því gengur í sunnan kalda eða strekking og fer að rigna, en hægari vindur og þurrt norðaustanlands þangað til seinnipartinn.
Á vef Veðurstofunnar segir að á norðanverðu Snæfellsnesi verði hins vegar hvassir vindstrengir og þar geti skapast varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem séu viðkvæm fyrir vindi. Hiti á landinu í dag verður á bilinu átta til sextán stig, hlýjast norðaustantil. „Vestlæg átt 8-15 m/s og skúrir á morgun, en snýst í norðlæga átt norðantil á landinu með rigningu. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Víða norðan gola eða kaldi síðdegis og dregur úr vætu norðanlands.“ Spákort fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestlæg átt 8-15 m/s og skúrir, en norðlægari og rigning norðantil á landinu. Víða norðan 5-13 og úrkomuminna síðdegis. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á fimmtudag: Norðlæg átt 5-13, en austlægari syðst. Rigning með köflum á sunnanverðu landinu, annars þurrt að kalla. Hiti 5 til 11 stig, mildast vestantil. Á föstudag: Norðlæg átt 5-10 og dálítil rigning um landið norðanvert. Bjart með köflum sunnantil, en líkur á stöku síðdegisskúrum. Hiti frá 5 stigum fyrir norðan, upp í 13 stig á Suðurlandi. Á laugardag og sunnudag: Norðlæg átt og skýjað með köflum, en fer að rigna austanlands. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Norðaustlæg átt og dálítil væta með köflum. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent Fleiri fréttir Rigningarveður í kortunum Slydda og snjókoma fyrir norðan Útlit fyrir talsverða rigningu Mögulegt hvassviðri fyrir sunnan Lægðagangur í suðri og hæðasvæði í norðri Allhvass vindur sunnantil og dálítil væta Víðast skúrir og él og herðir á vindi í kvöld Úrhellisrigning á Vesturlandi Gular viðvaranir og ekkert ferðaveður Gæti sést til eldinga á vestanverðu landinu Myndarlegir úrkomubakkar fara yfir landið Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu: Verkefni björgunarsveita um 300 í gær Óvenjulegt að allt landið sé undir Eldingar víða um land: Litlar sem engar skemmdir í Hallgrímskirkju Vaktin: Aftakaveður gengur yfir landið Appelsínugular viðvaranir taka gildi: Stormur og sums staðar ofsaveður Tjón víða í Norðfirði eftir öfluga vindhviðu Appelsínugular viðvaranir: Gæti minnt á óveðrið 2015 Víða allhvasst og éljagangur Nýr veðurstofuvefur kominn í loftið Ferðalangar taki mið af hríð og hvössum vindum Gengur í sunnanstorm og leiðindaveður um allt land Stórhríð og foktjón í vændum Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Djúp lægð beinir illviðri til landsins Næsta lægð skellur á landið og von á asahláku og hvassvirði „Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Appelsínugular viðvaranir bætast við þær gulu Gengur í storm með slyddu eða snjókomu „Hvert kemst vatnið? Allt þetta vatn sem er á leiðinni?“ Sjá meira