Leikskólinn er einn fjögurra svokallaðra „ævintýraborga“ sem rísa til að fjölga leikskólaplássum, samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að borgirnar séu mikilvægur þáttur í þeirri vegferð að brúa bilið og bjóða börnum yngri en 18 mánaða pláss á leikskólum borgarinnar. Ævintýraborgirnar séu í færanlegum húsum sem hæfir vel nútíma leikskólastarfi.
Ásamt Einari voru Skúli Helgason formaður stýrihóps um uppbyggingu leikskóla, Árelía Eydís Guðmundsdóttir formaður skóla- og frístundaráðs, Helgi Grímsson formaður skóla-og frístundasviðs, Anna Sif Farestveit aðstoðarleikskólastjóri nýja leikskólans og tíu börn frá leikskólanum Steinahlíð viðstödd skóflustunguna.

Stefnt er að því að verkinu ljúki í október og í framhaldi verði hægt að taka á móti börnum í nýjan leikskóla í hinu nýja Vogahverfi. Ævintýraborgirnar eru sagður mikilvægur liður í verkefninu Brúum bilið þar sem þær bæta við samtals 340 nýjum leikskólaplássum af þeim 1680 plássum sem verkefnið tekur til í heild.
