Líkt og Vísir fjallaði um á síðasta ári er áralangri deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods ekki lokið. Í afar stuttu máli snýst deilan um það hvort að fyrirtæki geti slegið eign sinni á nafn fullvalda ríkis.
Árið 2019 ógilti Hugverkastofa Evrópusambandisns (EUIPO) vörumerkjaskráningu bresku verslunarkeðjunnar á orðinu Iceland innan Evrópusambandsins. Verslunarkeðjan áfrýjaði úrskurðinum til kærunefndar EUIPO. Hún vísaði málinu til sérstakrar fjölskipaðrar áfrýjunarnefndar stofnunarinnar. Krefst verslunarkeðjan þess að úrskurði EUIPO í málinu frá 2019 verði vísað frá.
Besta leiðin fyrir deiluaðila til að kynna sín sjónarmið
Bæði íslensk yfirvöld og Iceland Foods hafa skilað inn greinargerðum og gögnum vegna málsins. Í vor tók fjölskipaða áfrýjunarnefndin fyrir beiðni Iceland Foods um að munnlegur málflutningur færi fram í málinu. Íslensk yfirvöld höfðu einnig tekið undir beiðni Iceland Foods.
Í niðurstöðu fjölskipuðu áfrýjunarnefndarinnar segir að nefndin telji að með munnlegum málflutningi megi betur ná utan um staðreyndir málsins og þau sjónarmið sem deiluaðilar telji að eigi við. Báðir aðilar fái með því gott svigrúm til að kynna röksemdir sínar sem og spyrja þá sérfræðinga sem kallaðir verða til spjörunum úr.
Málflutningurinn fer fram í höfuðstöðvum EUIPO í Alicante á Spáni þann 9. september næstkomandi.
Í tilkynningu á vef EUIPO segir að þetta sé í fyrsta skipti sem munnlegur málflutningur verður haldinn í áfrýjunarmáli sem hin fjölskipaða áfrýjunarnefnd tekur fyrir.