Skoðun

Dagforeldrastéttin sem brúar bilið

Kolbrún Hildur Gunnarsdóttir skrifar

Dagforeldrar sem starfa í Reykjavík horfa nú uppá fyrirframséða stöðu foreldra í borginni. Það er með ólíkindum að sjá vanmátt þeirra sem ráðum ríkja og þykjast ekki hafa séð það fyrir. Við vitum öll að það koma tölur á hverju ári um hversu mörg börn fæðast og af þeim líkindum má ráða hversu mörgum börnum vantar gæslu ár hvert. Að horfa á umkomulausa stjórnendur þessa daggæslu/ leikskólasviðs, er með ólíkindum. Í áratugi hafa dagforeldrar brúað bilið. Við fáum þó aldrei hrós fyrir það. Við höfum sparað borginni miljarða, en hvergi erum við nefnd. Það er eins og við séum ekki til, en við erum þarna og ávallt reiðubúin og höfum verið.

Metnaðarleysi borgarinnar í gegnum síðustu ár hefur breytt okkar starfsumhverfi og fálát svör borgarinnar gert það að verkum að daggæsla í heimahúsi með 5 börnum í gæslu er að hverfa. Fyrir nokkrum árum vorum við 300 starfandi. Við erum tæp 90 í dag og förum fækkandi.

Sé horft til nærliggjandi sveitarfélaga er staðan allt önnur. Metnaðarfull niðurgreiðsla og Það að foreldrar hafi val um margmennar gæslur og eða fámenna hljóðláta gæslu í heimahúsi sem hefur leyfi til slíkra starfa er þar í hávegum höfð. Nei!! Borgin ákvað að við værum börn okkar tíma og stofnanir væru eina rétta leiðin... en hvað gleymdist í jöfnunni?

Það þarf að manna leikskólabyggingar því þær manna sig ekki sjálfar. Nú erum við öll sjálfsagt undrandi. Því kosningaloforðin hljómuðu uppá fullt af leikskólum og glansmyndin var svo skýr... en grunnurinn að byggingunni var varla til staðar.Eitthvað þarf að laga svo starfsfólk sækist í að vinna á leikskólum.

Metnaðurinn var semsagt bara: kosningaloforð sem átti að svíkja. Eins og staðan er núna hefði verið lag að við gætum rétt hjálparhönd svo foreldrar í borginni sitji ekki á vergangi með sín börn. Reykjavíkurborg ákvað að gleyma ykkur kæru foreldrar og okkur!

Mín orð til borgarinnar: Hisjið upp um ykkur buxurnar og eflið dagforeldrastarfið sem samhliða gæslu. Mín stétt hefur staðist tímans tönn og með metnaði frá hendi borgarinnar væri hægt að brúa bilið svo öldurnar lægi um stund.

Höfundur hefur starfað við daggæslu í heimahúsi í 33 ár og líklega gætt sirka 2.000 barna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×