Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu til fjölmiðla.
Þar kemur fram að fjölmörg mál hafi komið á borð lögreglu vegna ölvunar og annarslegs ástand. Þá var tilkynnt um tvo aðila að brjótast inn á veitingastað í borginni en þeir voru báðir handteknir og gistu fangageymslur.
Hnífstungur og vopnaburður
Um hálf þrjú leytið barst lögreglunni tilkynning um hnífaárás á Lækjartorgi, tveir menn urðu fyrir árás og voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar.
Árásaraðilar fundust skömmu síðar og voru vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins sem miðar vel, að sögn lögreglu.
Einnig hafi fleiri mál komið upp vegna vopnaburðar og haldlagði lögregla nokkra hnífa í nótt.
Mikið um ölvun
Þó nokkrir aðilar voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þrír þeirra gista fangageymslur þar sem þeir ollu umferðaróhöppum, slysum eða mál þeirra þörfnuðust frekari rannsóknar. Lögregla ók einnig þó nokkrum aðilum heim sem höfðu drukkið of mikið og auk þess voru nokkur slys sem má rekja til ölvunar.
Fyrr um daginn hafði lögreglan greint frá því að hún hyggðist taka hart á drykkju unglinga á Menningarnótt. Þar kom fram að börn yngri en sextán ára yrðu færð í athvarf fyrir ungmenni væru þau úti eftir lögboðinn útivistartíma og ölvuð börn undir átján ára yrðu flutt í sama athvarf.