Þetta endar örugglega skelfilega Rakel Sveinsdóttir skrifar 2. september 2022 07:01 Rétt'upp hendi sem þekkir einhvern sem er alltaf svartsýnn þegar það á að gera eitthvað, breyta einhverju eða stefna á að ná einhverju markmiði. Eða ert þú kannski svartsýni vinnufélaginn? Vísir/Getty Það er alveg pottþétt að þetta fer ekki vel. Ekki séns að þetta gangi upp. Að fólki skuli detta í hug að gera þetta? Mun örugglega enda skelfilega.
Rétt'upp hendi sem þekkir mjög svartsýnt fólk. Eða ert þú kannski svartsýni vinnufélaginn? Það vill örugglega enginn verða uppvís að því að vera svartsýni vinnufélaginn. Enda ekkert gaman að vera alltaf sá sem er neikvæður og tuðar. Sá sem er svartsýnn upplifir stöðuna reyndar öðruvísi; að hann/hún sé að benda á það sem gæti gerst og misfarist, sem hinir eru einfaldlega ekki að átta sig á! En oft er þetta ekki þannig því yfir 90% af því slæma sem við mögulega teljum oft að geti gerst, gerist ekki. Þess vegna er svo mikilvægt að svartsýni fái ekki að gerjast í hópum eða verða að vana hjá okkur. Enda er svartsýni lýjandi. Bæði fyrir okkur sjálf og aðra í kringum okkur. Á vinnustöðum getur fólk til dæmis orðið mjög þreytt ef það starfar náið með einhverjum sem er alltaf svartsýn/n. Og það eru allar líkur á að svartsýnin smiti eða dragi úr líkum á þeim árangri sem hægt væri að ná. Svartsýni getur því verið eins og snjóbolti sem stækkar og stækkar. Á ensku er til dæmis talað um Catastrophic Leadership þegar það er yfirmaðurinn sjálfur sem er svartsýni vinnufélaginn. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvaða áhrif sú staða hefur á árangur starfsfólks! Svartsýni getur verið svolítið erfið viðfangs að því leytinu til að fólk sem er mjög svartsýnt er ekkert endilega alltaf neikvætt. En kikkar svo inn með svartsýni um leið og það á að gera eitthvað nýtt eða öðruvísi, breyta einhverju, leysa úr áskorunum eða ná einhverju nýju markmiði. Og viðkomandi sér fyrst og fremst aðeins það sem á versta veg gæti farið! En hér eru nokkur ráð sem við gripum af vefsíðunni PsychCentral: Prófaðu að punkta niður hjá þér, hvenær það er sem þú ósjálfrátt verður svartsýn/n. Mögulega áttar þú þig á einhverju mynstri hjá þér. Beinist svartsýnin til dæmis sérstaklega að einhverjum ákveðnum aðstæðum, breytingum, markmiðum? Núvitund er sögð mjög góð leið til að sporna við svartsýni og á netinu er hægt að finna ýmsar einfaldar leiðir á netinu til að þjálfa sig í núvitund. Skoraðu svartsýnina á hólm. Þegar þú finnur að svartsýnin er að yfirtaka hugmyndirnar þínar um það sem mögulega gæti gerst, veltu þá fyrir þér: Hversu raunhæf er þessi svartsýni? Hvað er það versta sem gæti gerst ef…? Að þjálfa sig í lausnarmiðaðri hugsun er góð leið en þetta getur þú æft með því að svissa alltaf yfir í „Hvernig væri hægt að leysa þetta?“ Að þjálfa sig í að vera í flæði getur líka verið góð leið. Þá leyfum við hlutunum bara að koma í ljós án þess að ákveða fyrirfram að allt geti farið á versta veg. Stundum þurfum við líka bara að bíða eftir því að hlutir skýrist. Búðu til mismunandi sviðsmyndir er líka ágætis ráð. Sem þýðir að í stað þess að gera aðeins ráð fyrir því versta, punktum við niður allar mögulegar niðurstöður (líka þá bestu). Með þessu hjálpum við huganum að sjá að það getur ekki bara verið einhver ein leið eða niðurstaða. Ræddu málin við vin, maka eða vinnufélaga. Svartsýni er eitthvað sem allir þekkja og upplifa í einhverjum mæli. Að ræða við traustan vin um að þér finnist þú of fastur/föst í svartsýninni og leita ráða gæti hjálpað mikið. Ef þér finnst svartsýnin hins vegar fara yfir þau mörk að þú treystir þér til að sporna við henni sjálf/ur gæti verið ástæða til að leita aðstoðar hjá fagaðila. Því svartsýni getur líka verið birtingarmynd viðvarandi kvíða eða þunglyndis sem gott er að fá aðstoð við.
Góðu ráðin Geðheilbrigði Tengdar fréttir Algengustu mýturnar í leiðinlegri vinnu Oooh. Enn einn vinnudagurinn og jafn súrt og það hljómar er fullt af fólki sem nennir varla fram úr einfaldlega vegna þess að þeim finnst svo leiðinlegt í vinnunni. 26. ágúst 2022 07:01 Staðreynd að margt starfsfólk upplifir þunglyndi eftir sumarfrí Rannsóknir hafa sýnt að fólk er mun ánægðara áður en það fer í frí í samanburði við þegar fríinu lýkur. Sem gæti hljómað skringilega því það er einmitt eftir frí sem við eigum að vera svo úthvíld og endurnærð. 3. ágúst 2022 08:01 Að kljást við fúla og leiðinlega vinnufélaga Við erum að öllu jöfnu öll að gera okkar besta. Mætum til vinnu, brettum upp ermar og erum kát. 10. júní 2022 07:00 Bráðsmitandi skap stjórnenda og góð ráð Gott skap smitar. Vont skap smitar. En fátt er þó meira smitandi á vinnustaðnum en skap stjórnandans. 29. apríl 2022 07:00 Tíu algengustu vandamálin á vinnustöðum Það skiptir engu máli þótt vinnustaðirnir okkar séu ólíkir eða störfin okkar séu af ólíkum toga: Algengustu vandamálin á vinnustöðum eru oftar en ekki þau sömu eða keimlík. 20. apríl 2022 07:01 Mest lesið Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Viðskipti innlent „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Viðskipti innlent Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Viðskipti innlent Verðbólgan komin undir fimm prósent Viðskipti innlent Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Viðskipti innlent Steyptu fyrsta gullmolann Viðskipti innlent Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Viðskipti innlent Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Viðskipti innlent Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Sjá meira
Algengustu mýturnar í leiðinlegri vinnu Oooh. Enn einn vinnudagurinn og jafn súrt og það hljómar er fullt af fólki sem nennir varla fram úr einfaldlega vegna þess að þeim finnst svo leiðinlegt í vinnunni. 26. ágúst 2022 07:01
Staðreynd að margt starfsfólk upplifir þunglyndi eftir sumarfrí Rannsóknir hafa sýnt að fólk er mun ánægðara áður en það fer í frí í samanburði við þegar fríinu lýkur. Sem gæti hljómað skringilega því það er einmitt eftir frí sem við eigum að vera svo úthvíld og endurnærð. 3. ágúst 2022 08:01
Að kljást við fúla og leiðinlega vinnufélaga Við erum að öllu jöfnu öll að gera okkar besta. Mætum til vinnu, brettum upp ermar og erum kát. 10. júní 2022 07:00
Bráðsmitandi skap stjórnenda og góð ráð Gott skap smitar. Vont skap smitar. En fátt er þó meira smitandi á vinnustaðnum en skap stjórnandans. 29. apríl 2022 07:00
Tíu algengustu vandamálin á vinnustöðum Það skiptir engu máli þótt vinnustaðirnir okkar séu ólíkir eða störfin okkar séu af ólíkum toga: Algengustu vandamálin á vinnustöðum eru oftar en ekki þau sömu eða keimlík. 20. apríl 2022 07:01