Hægir vindar og víða bjartviðri Atli Ísleifsson skrifar 7. september 2022 07:10 Hiti á landinu verður á bilinu tíu til tuttugu stig í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir hægum vindum og víða bjartviðri í dag, en sums staðar þokubökkum við sjávarsíðuna og dálítilli rigningu suðaustantil síðdegis.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu tíu til tuggugu stig yfir daginn og verður hlýjast suðvestanlands í dag „Á morgun nálgast lægð með úrkomusvæði af Grænlandshafi og fer þá að rigna við vesturströndina og síðar einnig sunnan til. Annars bjart með köflum og þurrt að kalla. Austan- og suðaustankaldi á föstudag og víða rigning, en hægara og bjart á Norðausturlandi. Áfram hlýtt í veðri að deginum, en útlit fyrir norðanáttir um helgina með kólnandi veðri.“ Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðlæg átt, 3-8 m/s og víða bjartviðri, en 8-13 og rigning vestast á landinu. Hiti 11 til 18 stig, hlýjast á Norðurlandi. Á föstudag: Suðaustan og austan 5-13 m/s og rigning, en hægari vindur og bjart um landið norðaustanvert. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á laugardag: Norðan og norðaustan 5-10 m/s og rigning víða um land, en bjart með köflum og þurrt að kalla vestanlands. Hiti frá 7 stigum á nyrst upp í 17 stig á Suðurlandi. Á sunnudag: Fremur hæg norðlæg átt og víða bjart með köflum, en strekkingur og dálítil væta austast. Kólnar heldur í veðri. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir breytilega átt með vætu víða um land. Milt veður að deginum.
Veður Mest lesið Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent „Talandi um að skila ekki til samfélagsins“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Innlent Fjölmenn lögregluaðgerð á Ísafirði Innlent „Er ekki hægt að hafa sér þátt fyrir hann?“ Innlent „Ég mun deyja á þessari hæð“ Innlent Svona voru kappræður flokksleiðtoganna Innlent Ósennilegar skýringar á því hvernig DNA endaði á kynfærum Innlent Fleiri fréttir Kaldri norðlægri átt beint til landsins Gul viðvörun á Vestfjörðum Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Hiti að sex stigum Norðanátt og éljalofti beint til landsins Áfram kalt og bætir í vind á morgun Áfram kalt á landinu en bjartviðri sunnan heiða Áfram köld og norðlæg átt Heimskautaflofti beint til landsins í sífellu Stinningskaldi og él fram í miðja viku og svo kólni frekar Viðvaranirnar sumar orðnar appelsínugular Allhvöss suðvestanátt og hlýtt en illviðri á morgun Suðvestan hvassviðri norðan- og austantil Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Suðvestan stormur, rigning og gular viðvaranir Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms Allt að tuttugu stiga hiti Næsta lægð væntanleg á morgun Víðast hvar rólegt en viðvörun á Vesturlandi Bætir smám saman í vind Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Víða hvasst og gul viðvörun vegna vinds á Snæfellsnesi Spá stormi á Snæfellsnesi á morgun Dregur smám saman úr vindi og úrkomu Sjá meira