Næstu tvær vikur verður þjóðarsorg í Bretlandi.Getty/Wiktor Szymanowicz
Eftir að fréttir um fráfall Elísabetar II Bretadrottningar barst breskum almenningi í gær safnaðist fólk víða saman til að syrgja þann leiðtoga þjóðarinnar sem lengst sat í hásæti.
Þúsundir lögðu blómvendi að hliðinu við Buckingham höll í Lundúnum og tóku ljósmyndir af heimili drottningarinnar, þar sem fánar blöktu við hálfa stöng. Einhverjir klifruðu upp á minnisvarðann um Viktoríu drottningu og veifuðu þar breska fánanum. Það voru að sjálfsögðu ekki bara Bretar sem syrgðu drottninguna heldur íbúar víða um Breska sambandsveldið.
Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan Buckingham-höll.Getty/Yui MokElísabet lést í sumarhúsi sínu í Balmoral í Skotlandi.Getty/Wiktor SzymanowiczMínútuþögn fór fram á fótboltaleik West Ham United og FCSB á leikvanginum London Stadium í gærkvöldi í tilefni andláts hennar.Getty/Richard HeathcoteFólk lagði blóm að hliðum Windsor kastala, megindvalarstaðar drottningarinnar, í gær.Getty/Andrew MatthewsStuttu eftir tilkynninguna var fólk saman komið fyrir utan Windsor kastala.Getty/Mark KerrisonÍbúar í Sydney voru fljótir að leggja blóm að hliðum Goernment House Sydney í Sydney. Húsið er íbúðarhús ríkisstjóra Nýju Suður Wales.EPA/BIANCA DE MARCHIStarfsmenn Buckingham hengja upp formlega tilkynningu um andlát drottnignarinnar á hlið kastalans.Getty/Samir HusseinDrottningarinnar minnst í St. Patrick's dómkirkjunni í Melbourne í Ástralíu.Getty/JOEL CARRETTGríðarlegu magni blóma var komið fyrir á hliði Windsor.Getty/Wiktor SzymanowiczTilkynningar um andlát drottningarinnar mátti finna víða um Bretland í gær, meðal annars á þessari strætóstoppistöð.Getty/TOLGA AKMENFólk tók upp símana til að ná mynd af Buckingham höll.Getty/Samir HusseinFólk leggur blóm að Holyrood höllinni í Edinborg. Getty/Christopher FurlongKarl, sonur Elísabetar, tekur við embætti þjóðarleiðtoga en hann verður Karl III Bretakonungur. Getty/Jane BarlowMaður heldur á regnhlíf skreytta breska fánanum fyrir utan Buckingham höll.Getty/Samir HusseinFólk leggur blóm að Balmoral kastala í Skotlandi, þar sem Elísabet Bretadrottning lést í faðmi fjölskyldu sinnar í gær.EPA/PAUL REIDKonunglegum fána Skotlands flaggað í hálfa stöng við Holyroodhouse höllina í Edinborg. Getty/Jane BarlowFólk lagði blóm að sendiráði Bretlands í Berlín í gær.EPA/Filip SingerDominic Perrottet innanríkisráðherra Nýju Suður Wales og Andrew Bell bera blóm að Government House Sydney í Sydney.EPA/Bianca de MarchiFólk klifraði upp á minnisvarðann um Viktoríu drottningu og veifaði breska fánanum.Getty/Wiktor SzymanowiczGríðarlegur fjöldi fólks var við Buckingham í gærkvöldi.Getty/Samir HusseinTilkynning um andlát drottningarinnar á auglýsingaskilti í Lundúnum. EPA/Tolga AkmenFólk hefur lagt blóm að Buckingham höll í stórum stíl.Getty/Wiktor SzymanowiczJoe Biden Bandaríkjaforseti skrifar samúðarkveðju í þar til gerða bók í sendiráði Bretlands í Washington í Bandaríkjunum. EPA/Chris Kleponis