Allt breyttist, einnig ásýnd bæjarins. Systurnar Aðalheiður og Harpa Vilbergsdætur lýsa því hvað það þótti spennandi að fá lyftublokkir og hringtorg.
„Þessir litlu og ómerkilegu hlutir urðu allt í einu að einhverju stórmerkilegu fyrir svona sveitafólk. Það var keyrt norður til Akureyrar í bílprófum til þess að læra að keyra í hringtorgi,“ segir Harpa.
Þær eru meðal viðmælenda í þættinum Um land allt á Stöð 2 um Reyðarfjörð. Þar lýsa íbúarnir kraftmiklu og fjölbreyttu samfélagi, sem á sér áhugaverða sögu.
Þannig urðu áhrif hersetunnar í síðari heimsstyrjöld óvíða jafnmikil og á Reyðarfirði. Frá því segja Reyðfirðingar á Stríðsárasafninu, sem við skoðum í þættinum.

Þá leitum við skýringa á því hversvegna bærinn státar af öflugri glímuköppum en allir aðrir. Bæði glímukóngur Íslands og glímudrottning Íslands eru Reyðfirðingar.
Við kynnumst sveitasamfélaginu en skammt innan kauptúnsins eru að verða kynslóðaskipti á bænum Sléttu. Þar er ungt par að taka við sauðfjárbúi og búið að reisa sér nýtt íbúðarhús.
Iðnfyrirtækið Launafl er heimsótt. Það var sérstaklega stofnað til að þjónusta álverið en hjá því starfa núna um eitthundrað manns. Köfunarþjónusta og garðyrkjustöð eru önnur dæmi um atvinnurekstur sem við kynnumst.

Við forvitnumst einnig um félagslífið, heyrum um kvenfélagið og íþróttafélagið, og spjöllum við unglinga um lífið á Reyðarfirði og framtíðardraumana.
Þátturinn um Reyðarfjörð er á dagskrá Stöðvar 2 á mánudagskvöld klukkan 19.05. Hér má sjá brot úr þættinum í kynningarstiklu: