Skoðun

Umræða sem snertir okkur öll

Halldór Benjamín Þorbergsson skrifar

Við karlkyns stjórnendur eigum það sjálfsagt margir sameiginlegt að hafa hingað til skilað auðu í umræðu um breytingaskeið og líkamsklukku kvenna.

Mikill meirihluti stjórnenda á almennum vinnumarkaði er karlkyns og hlutfallið var lengi vel mun hærra. Því er óhætt að ætla að þessi málefni hafi fengið minni athygli stjórnenda en ella. Okkur hefur líklega fæstum þótt við eiga erindi í umræðu um þessi mál. Nú er kominn tími fyrir okkur að verða upplýstari og stíga inn í þessa mikilvægu umræðu, en útlit er fyrir ótímabært brottfall stórs hóps af vinnumarkaði ef ekkert verður að gert. Hér þurfa allir að standa saman.

Brottfall af vinnumarkaði

Það sem hingað til hefur farið dult er að bein tengsl eru á milli breytingaskeiðs og kulnunar og þar af leiðandi brottfalls af vinnumarkaði. Mikilvægi þessarar uppgötvunar er meira í ljósi þess að konur eru tæplega helmingur starfandi á íslenskum vinnumarkaði.

Breytingaskeiðið hefur líka áhrif á þá sem ekki falla af vinnumarkaði þar sem rannsóknir sýna að það hafi áhrif á starfsþróun þeirra. Nýlegar tölur frá Bretlandi sýna að um 900.000 einstaklingar hætta fyrr þátttöku á vinnumarkaði vegna áhrifa breytingaskeiðsins. Alls er framleiðslutap vegna breytingaskeiðsins á heimsvísu metið á yfir 150 milljarða Bandaríkjadala á ári – eða sem nemur um sjöfaldri landsframleiðslu Íslands árið 2021.

Það er mikilvægt að halda því til haga að breytingaskeiðið er ekki sjúkdómur. Eigi að koma í veg fyrir mikið tjón vegna brotthvarfs stórs hluta þess hóps af vinnumarkaði þarf að bregðast við mun fyrr. Um það eru læknar og aðrir sérfræðingar sammála.

Vitundarvakning

Nauðsyn vitundarvakningar um breytingaskeiðið er mörgum ljós sem kynnt sér hafa þessar tölur. Svíar hafa sett þetta formlega á dagskrá á almennum og opinberum vinnumarkaði. Þá hefur breska vinnueftirlitið sett þessi mál á oddinn og hvatt fyrirtæki til að taka tillit til þessa við skipulag vinnu og vinnuaðstæðna.

Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á heilbrigt og öflugt atvinnulíf. Við viljum bæði draga úr veikindafjarvistum og ótímabæru brottfalli af vinnumarkaði. Stjórnendur þurfa að vera upplýstir um breytingaskeiðið og einkenni þess, hvort sem þeir þekkja það af eigin raun eða ekki.

Þetta mál snertir allt samfélagið með einum eða öðrum hætti. Það er orðið tímabært að ræða breytingaskeiðið á vinnustaðnum og þannig tryggjastarfsumhverfi þar sem öllum líður vel.

Það er algjör óþarfi að vera lítill í sér gagnvart umræðu um málefni sem snertir svo stóran hóp starfsfólks fyrirtækja. Við hvetjum stjórnendur af öllum kynjum til að setja málið á dagskrá.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Í dag er alþjóðadagur breytingaskeiðsins, 18. október. Af því tilefni stendur GynaMEDICA fyrir fræðsluviðburði á Grand Hotel sem er öllum opinn í streymi. Samtök atvinnulífsins eru einn af bakhjörlum viðburðarins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×