Sérstakir gestir BLÖ-drengjanna verða Sverrir Bergmann, Jóhanna Guðrún og Halldór Gunnar. Auddi og Steindi verða bingóstjórar og er aldrei að vita hverju þeir finna upp á. Auglýsingu fyrir vetrarbingóið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Svakalegir vinningar
Fjöldi veglegra vinninga eru í boði fyrir þá sem eru svo heppnir að fá bingó. Þá helstu má sjá hér fyrir neðan.
- Playstation 5 tölva
- 100 þúsund krónur hjá Icelandair
- Samsung Galaxy FLIP 4 sími
- Pizzaofn
- Rig 800 heyrnartól
Svona virkar þetta
Áskrifendur Blökastsins fá aðgang að hlekk með bingóinu og getur hver fjölskyldumeðlimur sótt sér þrjú spjöld. Þeir sem vilja taka þátt fara á hlekkinn, skrifa fullt nafn og slá inn símanúmer. Síðan skrá þeir sig inn með tölunum sem sendar eru með smáskilaboðum í það símanúmer. Þá eru spjöldin orðin virk.
Athugið að spjöldum er úthlutað á símanúmer, hægt er að skrá sama símanúmer í fleiri en eitt tæki en þá koma sömu spjöld. Tækin muna eftir innskráningunni þannig að hægt er að fara af síðunni og koma aftur. Hægt er að sækja spjöld með öllum símanúmerum.
Hægt er að gerast áskrifandi og sjá nánari upplýsingar á vef Tals hér á Vísi.
Blökastið er áskriftarhlaðvarp með Audda, Steinda og Agli úr útvarpsþættinum FM95BLÖ. Nýir þættir koma út á hverjum þriðjudegi, ásamt skemmtilegu aukaefni eins og reglulegum sjónvarpsþáttum. Nánar á FM95BLO.is.