Í færslu sem Helgi Hrafn birti á Facebook í kvöld segist hann hafa verið meðal þeirra sem mennirnir sem ákærðir hafa verið fyrir tilraun til hryðjuverka hafi rætt um að myrða. Eða eins og Helgi Hrafn orðar það er hann einn þeirra sem „tveir náungar, vopnaðir upp fyrir augntotur, spjölluðu fremur léttúðlega um að myrða einn daginn, en bara svona í einhverju djóki samkvæmt lögmanni þeirra“.
Mönnunum hefur verið sleppt úr haldi en Helgi Hrafni segir að eina ástæðan fyrir því að hann sé meint skotmark mannanna sé sú að hann hafi starfað í stjórnmálum í nokkur ár. Markmið hans hafi verið að auka frelsi fólks, dreifa valdi og draga úr ofvaldi yfirvalda. Hann hafi unnið gegn vopnvæðingu lögreglunnar, gegn forvirkum rannsóknarheimildum en með auknu eftirliti og aðhaldi með lögreglu.
„Nú, ef ég væri myrtur á morgun vegna þess sem ég barðist fyrir í stjórnmálum, hvort sem það væri af hendi þessara tilteknu náunga eða einhvers annars, þá væri það hið allra síðasta sem ég myndi vilja, að minning mín væri misnotuð sem afsökun fyrir því að ganga í þveröfuga átt við allt sem ég barðist fyrir alla mína tíð í stjórnmálum,“ skrifar Helgi Hrafn.
Sjá einnig: Hvorki taldir hættulegir sér né öðrum og sleppt úr haldi
Byrja eigi á auknu eftirliti
Hann segir að ef lögreglan þurfi aukna valdheimildir og forvirkar rannsóknarheimildir eigi að byrja á alvöru eftirliti með lögreglunni. Ef lögreglan þurfi að lengja gæsluvarðhald eigi að byrja á eftirliti með þeim vinnubrögðum sem lenda fólki í gæsluvarðhaldi.
„Vinsamlegast ekki nota meintar hótanir í minn garð sem afsökun fyrir því að afvegaleiða umræðuna um lögreglu- og öryggismál frá þessum hófstilltu, rökréttu og reyndar fjandakornið sjálfsögðu skrefum. Og í leiðinni mætti kannski taka á öryggisógnum gegn borgurunum sem stafa af yfirvöldum sjálfum, eins og hvernig vímuefnaneytendur og möguleg fórnarlömb mansals þurfa að óttast lögregluna sjálfa fyrir það eitt að vera möguleg fórnarlömb vímuefna eða kúgunar. Sem bara tvö mjög augljós dæmi; þau eru fleiri,“ segir Helgi.
Helgi segist auðvitað bara tala fyrir sjálfan sig en hann verði að segja þetta í ljósi þess að yfirvöld séu að nota málið sér til stuðnings.
„Ég hef ekki takmarkalausan áhuga á því að draga andann einan og sér, og er ekki reiðubúinn til að fórna hverju sem er til að lifa. Ég skal hvoru tveggja deyja og drepa fyrir frelsið. Frekar skal ég deyja til að tala fyrir frelsinu heldur en að lifa til að fórna því. Ekki halda að það sé hægt að hræða mig með hryðjuverka- og morðhótunum til að fórna bara höndum og samþykkja hvað svo sem dómsmálaráðherra eða lögreglan vilja, því það er bara ekki þannig. Gef mér frelsi eða gef mér dauða. Gef mér lýðræði eða gef mér stríð.“
Helgi segist hafa viljað gera þessa afstöðu sína skýra ef ske kynni að „yfirvöld ætluðu nokkurn tíma að misnota minningu mína til að réttlæta aukin umsvif sín án aukins eftirlits.“