Ragnar Þór hefur á undanförnum dögum þjarmað að leigufélaginu Ölmu sem hefur verið í deiglunni undanfarna daga eftir að það komst í sviðsljósið eftir að greint var frá því í síðustu viku að Alma hafi hækkað leigu hjá öryrkja um þrjátíu prósent.
Segir fullyrðingar framkvæmdastjóra Ölmu engu vatni halda
„Ég vil þakka frábærar viðtökur við fyrri póstum mínum um stöðu fólks á leigumarkaði og þá sérstaklega málefni tengd Ölmu,“ segir Ragnar Þór í pistli sem hann birti á Facebook-síðu sinni nú fyrir stundu.
Þar greinir Ragnar frá því að hann hafi kallað eftir dæmum í umræðuhópi leigjenda til að kanna hvort fullyrðingar stjórnarformanns Ölmu, þess efnis að 30 prósenta hækkun í tilteknu dæmi væri undantekning eða einsdæmi. Og hvort það kæmi til vegna undirverðlagningar í miðbænum vegna Covid. Þá vill Ragnar Þór einnig fara í saumana á því hvort sú fullyrðing stæðist um að eingöngu væri verið að aðlaga leiguverð að markaðsvirði, svo fátt eitt sé nefnt.
Sláandi sögur leigjenda Ölmu
„Það stóð ekki á viðbrögðum og vægast sagt sláandi sögur, í staðfestum samskiptum við Ölmu.
Þetta eru gögn sem hrekja málflutning stjórnarformanns Ölmu að nær öllu leiti.
Við fyrstu skoðun og af þeim dæmum sem við höfum sannreynt lítur allt út fyrir að Alma sé að keyra upp markaðsvirði „Okra“ í samanburði við sambærilegar útleigðar eignir á sömu svæðum.“
Ragnar Þór segir fyrirliggjandi gögn staðfesta að íbúðin sem var undir í fréttinni sem velti umfjölluninni af stað væri ekki einsdæmi heldur hafi iðkað það um árabil að gefa í leiguverð eftir að nýir eigendur komu inn í fyrirtækið.
„Við höfum fengið leyfi frá nokkrum aðilum um að birta hluta þessara gagna,“ segir Ragnar Þór og auglýsir eftir fleiri dæmum, sögum þar sem greint er frá slæmri upplifun fólks af leigumarkaði á Íslandi.