Þetta kom fram á árlegum fundi Ma Huateng með starfsmönnum Tencent þann 15. desember. Samkvæmt heimildum Reuters var Ma reiður á fundinum og sagði að ítarleg rannsókn hefði leitt mikla spillingu innan veggja fyrirtækisins í ljós. Hann fór þó ekki nánar út í hvers konar spillingu um væri að ræða.
Hann gagnrýndi stjórnendur fyrirtækisins einnig harðlega á fundinum en en undanfarin tvö ár hafa reynst fyrirtækinu erfið. Hert regluverk yfirvalda í Kína hefur meðal annars komið verulega niður á tekjum Tencent sem Pony stofnaði árið 1998.
Auk þess að takmarka þann tíma sem kínversk börn mega spila verja í að spila tölvuleiki verulega, hafa yfirvöld í Kína einnig neitað að leyfa Tencent að gefa út nýjan tölvuleik í meira en fimmtán mánuði.
Sjá einnig: Börnum bannað að spila meira en þrjá tíma í viku í Kína
Ma gagnrýndi starfsmenn Tencent fyrir að slappa af um helgar og leika sér, þrátt fyrir erfiða stöðu fyrirtækisins. Samkvæmt Fortune, sem vitnar í áskriftarmiðilinn Bloomberg og kínverska miðla, gagnrýnd Ma nánast allar deildir fyrirtækisins.
Hann gagnrýndi leikjadeild fyrirtækisins fyrir að einblína á magn umfram gæði og sagði að samfélagsmiðladeild Tencent, sem rekur meðal annars WeChat, væri að tapa fyrir samkeppnisaðilum eins og Douyin, sem er miðill á vegum Bytedance.
Ma sagði of mikla áherslu hafa verið lagða á útvíkkun rekstursins í stað þess að vanda til verka í grunnrekstri Tencent. Það hefði kostað fyrirtækið.